Dropi Fennel 170 ml.

Dropi þorskalýsi er kaldunnið til að varðveita alla náttúrulega eiginleika olíunnar, einungis er notast við nýveiddan Atlantshafsþorsk (Gadus morhua). Engum gerviefnum eða viðbættum vítamínum er bætt við olíuna. Þorskalýsi af hreinustu gerð beint úr sjó. Fennel þykknið sem er notað til að bragðbæta er lífrænt.

Vörunúmer: 10170172
+
4.999 kr
Innihald

Önnur innihaldsefni: Náttúruleg andoxunarefni (rósmarín þykkni með náttúrulegum tókóferólum (tocopherols))

Athugið að Dropi þorskalýsi er gert úr 100% náttúrulegum hráefnum og næringargildið, ásamt lit og bragði olíunnar getur verið mismunandi eftir framleiðslulotum. Næringargildið er því byggt á meðaltali.

Fennel (Foeniculum vulgare) er plöntutegund af gulrótaætt. Hún er jafnan talin ein besta jurtin sem fer með fiski. Sæta, lífræna fennelolían í Dropa gefur olíunni heitt, sætt anís-líkt bragð.

Notkun: 1 teskeið (5ml) á dag. Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti, með ofnæmi fyrir fiski eða þjáist af langvinnum veikindum mælum við með að þú fáir faglega ráðgjöf hjá viðeigandi heilbrigðisstarfsfólki.

Varúð/Varist: Geymið þar sem börn ná ekki til. Innbyrðið ekki meira en ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni ætti ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt mataræði.

Geymsla: Geymist í ísskáp fyrir langvarandi ferskleika. Geymist í 3 mánuði í ísskáp eftir opnun.

Tengdar vörur