Femarelle Recharge 50+, 56 hylki

Femarelle Recharge- hjálpar konum á aldrinum 50+ að taka stjórnina á einkennum tíðahvarfa með hjálp hörfræa á öruggan og áhrifaríkan hátt. Ef þú ert hætt að hafa blæðingar þá er Femarelle Recharge fyrir þig. 

Vörunúmer: 10122055
+
4.416 kr
Vörulýsing

Femarelle Recharge fyrir konur á aldrinum 50+

Femarelle Recharge er náttúruleg lausn fyrir konur sem komnar eru á breytingarskeiðið og hafa óreglulegar blæðingar eða eru alveg hættar. Femarelle inniheldur einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a sem unnið er úr óerfðabreyttu soya og hörfræ sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína, ásamt B6 vítamín sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfsemi og draga úr þreytu og lúa.

Helsta innihaldsefni Recharge, DT56a, virkar þannig að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, ásamt því að efnið hefur það að markmiði að slá á einkenni tíðahvarfa, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.

Algengustu einkenni breytingaskeiðsins eru: óreglulegar blæðingar, skapsveiflur, hitakóf og/eða nætursviti, óþægindi í liðum og vöðvum og aukinn hjartsláttur.

Ábyrgðaraðili: Artasan


Notkun

1 hylki tvisvar á dag, kvölds og morgna.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Tengdar vörur