Iceherbs krakkamixtúra appelsínubragð 200 ml.

Fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.

Vörunúmer: 10141075
+
1.829 kr
Vörulýsing

Fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði er án alkóhóls og hentar því börnum frá eins árs aldri, enda höfðar appelsínubragðið vel til barna.

Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsumixtúrur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.

Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningarmáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.

Notkun

Hristist fyrir notkun.  1 teskeið (5 ml) 3-5 sinnum á dag handa börnum eldri en 1 árs.

Innihald

Vatn, maltitólsýróp, glúkósasýróp, fjallagrasaþykkni, appelsínuþykkni og pektín.

Tengdar vörur