Iceherbs Turmerik með pipar 60 hylki

Turmerik er unnið úr plöntunni Curcuma longa og inniheldur virka efnið curcumin og tilheyrir fjöl-fenólefnum, sem eru algeng náttúruefni með margvíslega líffræðilega virkni. Vegna þessarar virkni er Turmerik talið gagnast vel gegn ýmsum bólgutengdum vandamálum eins og liðagigt, psoriasis, blöðruhálsbólgu og Alzheimer.   Turmerik er talið leiða til  betri slökunar og aukinna lífsgæða.

Vörunúmer: 10137765
+
2.999 kr
Vörulýsing

Túrmerik getur hjálpað gegn hinum ýmsu kvillum, allt frá meltingartruflunum upp í gigtarsjúkdóma. Túrmerik hefur verið þekkt í þúsundir ára fyrir eiginleika sína sem bólgueyðandi jurt og sem kröftug andoxun. Það þykir ákaflega gott gegn gigtar- og húðsjúkdómum ásamt því að örva blóðflæði og hafa góð áhrif á sár.

Virka efnið í Turmerik er curcumin og hafa rannsóknir sýnt að bólgueyðandi áhrif þess séu ekki síðri en mörg bólgueyðandi lyf. Aðrir kvillar sem túrmerik hefur verið þekkt fyrir að hafa góð áhrif á eru liða-, slit og þvagsýrugigt, liðverkir, magabólga, magasár, vindverkir og ristilkrampi. Svartur pipar eykur upptöku túrmeriksins og margfaldar hann því áhrifin.

Ekki allir þola svartan pipar og er því blandan bæði í boði með og án pipars, undir „mild“ og „sterk“ blanda.

Fjallagrös eru viðurkennd lækningajurt, sem stundum hefur verið kölluð Gingseng Íslands. Fjallagrös innihalda betaglúkantrefjar sem auka þyngdartap, bæta meltingu og styrkja þarmana, einkum ristilinn. Fjallagrös hjálpa einnig við að draga úr bjúg.  Fjallagrös eru rík af steinefnum, einkum járni og kalsíum, og bera í sér fléttuefni sem hindra óæskilegar bakteríur.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.

Notkun
  • Takið 2 hylki á dag með vatni.
  • Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
  • Geymið þar sem börn ná ekki til.
Innihald

Varan inniheldur 60 hylki.

Hvert hylki inniheldur: 

  • Túrmerik 280 mg
  • Svartan pipar 80 mg
  • Íslensk fjallagrös 40 mg
  • Engin aukaefni
  • Hylkin eru úr jurtabeðmi (vegan)

Tengdar vörur