Marc Inbane Perle de Soleil brúnkudropar 15 ml.

Brúnkudroparnir frá MARC INBANE eru hin fullkomna lausn til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma sem er sérsniðinn að óskum hvers og eins. Brúnkudroparnir eru mjög auðveldir í notkun. Þú einfaldlega blandar þeim saman við þitt eftirlætis rakakrem/líkamskrem eða í sólarvörnina þína og nærð þannig fram náttúrulegri brúnku.

Vörunúmer: 10148523
+
7.967 kr
Vörulýsing

Gott ráð
Til að ná sem bestum árangri gott að nota svarta skrúbbinn frá MARC INBANE að minnsta kosti einu sinni í viku. Skrúbburinn sem er sótthreinsandi fjarlægir óhreinindi, dauðar húðfrumur sem og þurrkubletti. Skrúbburinn eykur líka blóðflæði og örvar endurnýjun húðarinnar. Þar sem yfirborð húðarinnar verður jafnara og sléttara við notkun á skrúbbnum þá verður liturinn líka jafnari og helst mun lengur.

Varúð
Brúnkudropana skal aðeins nota með nærandi kremi og mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningum. Brúnkudroparnir veita ekki vörn gegn skaðlegum geislum sólar. Mikilvægt er að þvo hendur eftir notkun. Aðeins ætlað til útvortis notkunar.

Geymið þar sem börn ná ekki til.

MARC INBANE er hágæða hollenskt snyrtivörumerki sem framleiðir lúxus brúnkusprey og tengdar vörur og eru þau frumkvöðlar á sínu sviði.

Hrein innihaldsefni, faglegt handverk, fáguð útlitshönnun og fagmennska í öllu framleiðsluferlinu setur MARC INBANE í leiðandi stöðu í framleiðslu á hágæða snyrtivörum.

Notkun

Notkunarleiðbeiningar

Mikilvægt er að passa uppá að húðin sé hrein áður en þú berð kremblönduna á þig.

Settu það magn sem þú notar venjulega af rakakremi/líkamskremi eða sólarvörn í lófann. Blandaðu svo örfáum brúnkudropum saman við kremið og berðu blönduna jafnt á húðina. Til að viðhalda litnum notar þú 1-2 dropa en 3-4 dropa til að dekkja litinn.

Tengdar vörur