Innihaldsefnin Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Mousturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. LE Teint inniheldur háþróaða UV vörn sem ver húðina gegn skaðlegum geislum sólar og ótímabærri öldrun.
Náttúrulegu plöntuþykkni er bætt við vegna mýkjandi og róandi eiginleika þess og gefur það einnig jafna og fallega áferð. Rakakremið er án olíu og er ríkt af vítamínum. Le Teint gefur húðinni meiri fyllingu og aukinn ljóma. Með notkun rakakremsins endurheimtir húðin sitt náttúrulega jafnvægi og heilbrigði. Hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.
Stöðugur vilji okkar hjá MARC INBANE til að betrumbæta og þróa afurðir okkar gerir okkur kleift að vera í fremstu línu við að kynna nýjustu framfarir í heimi brúnkunnar. Vegna þessa hafa vörur okkar unnið til verðlauna um allan heim.
Kostir Le Teint
- Styrkir þitt náttúrulega útlit
- Lengir endingartíma brúnkunnar
- Getur verið notað eitt og sér eða í bland við farða
- Hjálpar til við að verja húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar og áreiti umhverfisins
- Vörn gegn fínum línum og hrukkum
- Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun
- Sannreynt og prófað af húðlæknum
- Vegan
- Laust við paraben
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu
- Lofttæmdar umbúðir
MARC INBANE er hágæða hollenskt snyrtivörumerki sem framleiðir lúxus brúnkusprey og tengdar vörur og eru þau frumkvöðlar á sínu sviði.
Hrein innihaldsefni, faglegt handverk, fáguð útlitshönnun og fagmennska í öllu framleiðsluferlinu setur MARC INBANE í leiðandi stöðu í framleiðslu á hágæða snyrtivörum.