Multi-Gyn Actigel gegn óþægindum í leggöngum, 25 skammtar

Multi-Gyn Actigel fyrirbyggir og meðhöndlar skeiðarsýklun (e. bacterial vaginosis) og óþægindi í leggöngum. Gelið dregur úr helstu einkennum flóruójafnvægis  s.s. vondri lykt, útferð, kláða, roða og ertingu. 

Vörunúmer: 10156207
+
4.719 kr
Vörulýsing

Leiðbeiningar um notkun:

  • Við skeiðarsýklun: Notist að lágmarki tvisvar á dag í 5 daga (um 2 ml í senn, ekki nota sparlega).
  • Til að fyrirbyggja útferð með vondri lykt: Notist þriðja hvern dag.
  • Við óþægindum í leggöngum s.s. kláða: Notist minnst einu sinni á dag þar til einkenni eru horfin.

 
Stjaka fylgir til að auðvelda ísetningu í leggöng. Má einnig nota útvortis á barma.
 
Helstu innihaldsefni: 2QR efnasamband unnið úr Aloe Barbadensis plöntunni. Án allra aukaefna. 

Túpan inniheldur um 25 skammta. Multi-Gyn Actigel er skráð lækningatæki þar sem virkni hefur verið staðfest með viðurkenndum klínískum rannsóknum.

Tengdar vörur