Multi Mam kompresser fyrir brjóstagjöf 12 stk.

Multi-Mam Kompresser fyrir konur með barn á brjósti. Kompressurnar hjálpa mæðrum sem þjást af vandamálum vegna brjóstagjafar s.s. sárum, aumum, sprungnum og bólgnum geirvörtum.

Vörunúmer: 10156210
+
3.999 kr
Vörulýsing

Multi-Mam kompressurnar eru einstök hönnun þróaðar til að draga fljótt úr sársauka í geirvörtum. Þær eru gegndreyptar lífvirku geli sem hamlar vöxt skaðlegra örvera á öruggan og náttúrulegan hátt og styðja við náttúrulegan sáragróanda. Notkunarleiðbeiningar: Kompressurnar má nota eins oft og þörf krefur. Mælt er með því að nota þær eftir brjóstagjöf, minnst tvisvar á dag á sárar geirvörtur.

Kompressurnar skulu hvíla á geirvörtunum í minnst 10 mínútur og mest 1 klst í hvert skipti. Þær eru einnota og skal henda eftir notkun. Ekki þarf að þrífa umfram gel af geirvörtunni fyrir brjóstagjöf, gelið er skaðlaust fyrir barnið.
 
Helstu innihaldsefni: 2QR efnasamband unnið úr Aloe Barbadensis plöntunni. Það hlutleysir, kemur í veg fyrir viðloðun og hamlar vöxt skaðlegra baktería á öruggan og náttúrulegan hátt. Einnig styður við náttúrulegan sáragróanda.
 
Pakkningin inniheldur 12 kompressur með virku geli. Multi-Mam Kompresser er skráð lækningatæki þar sem virkni hefur verið staðfest með viðurkenndum klínískum rannsóknum.


Tengdar vörur