Pharmaceris T-med bakteríudrepandi vökvi fyrir andlit, bringu og bak 190 ml.

Hreinsivökvi sem borin er á húð sem útsett er fyrir sýkingu og bólum. Þessi vökvi hjálpar einnig að sporna gegn því að húðin glansi ásamt því að draga úr örum og litabreytingum á húð vegna sýkinga (e. acne).

Vörunúmer: 10141179
+
2.769 kr
Vörulýsing

Þessi lína er sérstaklega hönnuð til að meðhöndla húð sem fær bólur. Megininnihaldsefni hennar hjálpa til við að koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. Vörurnar eru bakteríudrepandi og hjálpa til við að halda bólum í skefjum. Vörurnar eru ofnæmisprófaðar og erta ekki. Með því að hreinsa húðina daglega og bera á hana krem við hæfi er hægt að hjálpa húðinni að ná jafnvægi og minnka bólur.

Þessi vara er sérstaklega hönnuð fyrir þau svæði sem eru mest útsett fyrir bólum og sýkingu. Getur hjálpa til við að koma í veg fyrir sýkingu á baki bringu og í andliti.

Árangur og virkni vörunnar fyrir blandaða og feita húð hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.

Drepur bakteríur og kemur í veg fyrir bakteríu vöxt
Þessi vökvið hefur bakteríu drepandi eiginleika. Kemur í veg fyrir að bakteríur þrífist á húðinni og kemur í veg fyrir sýkingar og að bólur myndist. Djúphreinsar húðina um leið og það kemur jafnvægi á fituframleiðslu. Kemur í veg fyrir bakteríumyndun og bólur. Möndlusýra hreinsar dauðar húðfrumur og harðnaða húð og hreinsar þannig stíflur úr svitaholum. Sítrónu og ávaxta þykkni gera húðina bjartari og dregur úr litabreytingum í húð þannig húðliturinn verður jafnari. Þurrkar ekki húðina. Undirbýr húðina undir frekari meðhöndlun og styður við meðhöndlun bóluvandamála.

  • Ofnæmisprófað
  • Klínískt prófað
  • Án Parabena
  • Án þekktra ofnæmisvalda (allergen free)
  • Án SLES
  • Án SLS
  • Án sápu
  • Án litarefna
  • Án ilmefna

Notkun

Hreinsið farða af með froðu eða geli. Setjið þar næst hæfilegt magn af vökvanum í bómull og hreinsið þau svæði sem eru útsett fyrri bólum og sýkingu. Notið síðan andlitskrem sem hæfir úr T línunni. Notið bæði kvölds og morgna.

Innihald

Mandelic acid –  Hefur bakteríueyðandi áhrif. Hreinsar yfirborð húðarinnar og kemur í veg fyrir myndun fílapensla og sýkinga.
Lemon extract – Gerir húðina bjartari og minnkar litabreytingar á húð vegna öramyndunar vegna sýkinga.
Fruit-peel – Mýkir húðina og gerir hana fíngerðari.

Tengdar vörur