Audéo Lumity heyrnartækin eru heyrnartækjalína Phonak með aukinni tækni og sjálfvirkni (AutoSense OS 5.0) sem byggð er á forverum sínum eins og Audéo Paradise (með AutoSense OS 4.0). Lumity tækin færa þér aukinn talskilning með hinni einstöku SmartSpeech™ tækni þannig að þú heyrir betur í erfiðum heyrnaraðstæðum og átt betur með samræður.
Nýjar viðbætur, frá síðustu heyrnartækja línu Phonak, eru StereoZoom 2.0 og SpeechSensor . SpeechSensor lyftir töluðu máli í hávaða til hliðanna og að aftan. StereoZoom 2.0 fókuserar á viðmælanda þinn og lyftir töluðu máli upp fyrir hávaða og klið á sjálfvirkan hátt þannig að þú getur einbeitt þér án truflunar að samræðum. Með myPhonak appinu getur þú jafnframt aukið á talfókusinn viljir þú vera við stjórnvölinn. Þökk sé SpeechSensor getur þú verið í erilsömu umhverfi og samt heyrt í sessunauti þínum þér við hlið án fyrirhafnar. SpeechSensor nemur rödd sessunautar og víkkar út talfókusinn til að lyfta röddinni upp fyrir kliðinn sem er í kringum þig. Skoða notendabækling hér
Adaptive Phonak Digital 2.0 gerir þér kleift að einbeita þér að því að gera hluti og vera til, í stað þess að þurfa einbeita þér að því að hlusta og setja ómælda orku í það.
- Endurhlaðanleg
- SpeechSensor 2.0
- StereoZoom 2.0