Phonak Lumity Audéo L-RL heyrnartæki, 7 litir

Audéo Lumity Life, endurhlaðanlegu og vatnsheldu, heyrnartækin gefa þér skýrari hljóð sem hjálpa þér að skilja betur hvað fer fram í hversdaglegum samræðum, bæði í hljóðlátum en einnig hávaðasömum aðstæðum. Audéo Lumity Life hentar allt frá mildri til mikillar heyrnarskerðingar.

  • Vatnsheld í allt að ½ m dýpi  
  • Raka- og svitaheld 
  • Endurhlaðanleg

Sjúkratryggingar veita styrk til heyrnartækjakaupa. Styrkupphæð er 60.000 krónur eða 120.000 krónur eftir því hvort keypt eru tæki fyrir annað eða bæði eyru. Hægt er að sækja um styrk á fjögurra ára fresti. Nánar hér

Vörunúmer: 10167658
Verð frá 199000-299000 með greiðsluþátttöku SÍ
Verð frá 259000-359000 án greiðsluþátttöku
+
Bóka tíma í heyrnarmælingu
Vörulýsing

Audéo Lumity Life tækin búa yfir öllum þeim eiginleikum sem Lumity tækin búa yfir – nema þau eru líka vatnsheld*. Þetta er önnur kynslóðin af fyrstu vatnsheldu endurhlaðanlegum heyrnartækjum í heiminum. Frábær heyrnarlausn fyrir einstaklinga sem eru virkir og vilja heyrnartæki sem hægt er að stóla á. Áhyggjulaus leið til að lifa lífinu nálægt raka og vatni, hvort sem er sviti, rigning eða sundferð. Njóttu alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða – í hreyfingu og hljóði.  

Lumity Life heyrnartækin eru nýjasta heyrnartækjalína Phonak með aukinni tækni og sjálfvirkni (AutoSense OS 5.0) sem byggð er á forverum sínum eins og Audéo Paradise (með AutoSense OS 4.0). 

Lumity Life heyrnartækin færa þér aukinn talskilning með hinni einstöku SmartSpeech™ tækni þannig að þú heyrir betur í erfiðum heyrnaraðstæðum og átt betur með samræður. Nýjar viðbætur, frá síðustu heyrnartækja línu Phonak, eru StereoZoom 2.0 og SpeechSensor . SpeechSensor lyftir töluðu máli í hávaða til hliðanna og að aftan. StereoZoom 2.0 fókuserar á viðmælanda þinn og lyftir töluðu máli upp fyrir hávaða og klið á sjálfvirkan hátt þannig að þú getur einbeitt þér án truflunar að samræðum. Með myPhonak appinu getur þú jafnframt aukið á talfókusinn viljir þú vera við stjórnvölinn. Þökk sé SpeechSensor getur þú verið í erilsömu umhverfi og samt heyrt í sessunauti þínum þér við hlið án fyrirhafnar. SpeechSensor nemur rödd sessunautar og víkkar út talfókusinn til að lyfta röddinni upp fyrir kliðinn sem er í kringum þig.  Skoða notendabækling hér

Adaptive Phonak Digital 2.0 gerir þér kleift að einbeita þér að því að gera hluti og vera til, í stað þess að þurfa einbeita þér að því að hlusta og setja ómælda orku í það. 

  • Vatnsheld í allt að ½ m dýpi  
  • Raka- og svitaheld 
  • Endurhlaðanleg 

Tengdar vörur