Prima sjálfspróf | Glútenóþol 1 stk.

Sjálfspróf fyrir þá sem gruna að þeir séu með glútenóþol. Glútenóþol er langvinnur sjálfsofnæmissjúkdómur sem felur í sér bólgu í smáþörmum vegna inntöku gliadin: próteinhluti glútens. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að fólk sem þjáist af glútenóþoli framleiðir sértæk mótefni gegn gliadin deamidated peptíðum (anti-DGP).

Vörunúmer: 10166469
+
2.599 kr
Vörulýsing
  • Gliadin er vatnsleysanlegt peptíð sem virkar sem "lím", sem hjálpar til við að viðhalda lögun fæðunnar svo hún geti farið í gegnum þarmaþekjuna
  • Einkenni tengd glútenóþoli eru t.d kviðverkir og bólgur, langvinnandi niðurgangur, hægðatregða, uppköst, þyngdartap og pirringur.
  • Einnig er prófið fyrir þá sem eru erfðafræðilega kunnugir sjúkdómnum. 

Notkun

Hvernig á að framkvæma próf?

  1. Þvoið hendur með sápu og strjúkið yfir með hreinsi grisju
  2. Notið nálina (lensu) og stingið á fingurinn, gott er að þrýsta á fingur til að fá meira blóð fram í fingurgóma
  3. Takið blóð úr fingri með píphettu upp að svartri línu
  4. Setjið blóð úr píphettu í hettuglasið með lausninni
  5. Lokið hettuglasi og hristið 
  6. Setjið 3 dropa ofan í kubbinn (S)
  7. Bíðið í 10 mín eftir niðurstöðu
Innihald

Í hverjum kassa fylgir eftirfarandi:

  • 1 prófkubbur
  • 1 hettuglas með dropateljara sem inniheldur lausn
  • 2 dauðhreinsaðar lensur (nálar)
  • 1 píphetta til blóðsýnatöku
  • 1 hreinsigrisja
  • Leiðbeiningar um notkun


Sérstaða >94%
Næmi > 81%
Nákvæmni > 90%

Tengdar vörur