RapidBrow augnbrúnanæring 3 ml.

RapidBrow augabrúnanæring serum hjálpar til við að þétta og bæta augabrúnirnar og gefur þeim sýnilegra útlit.

Vörunúmer: 10129842
+
7.998 kr
Vörulýsing

RapidBrow augabrúna serum er árangursrík lausn sem hjálpar til við að næra og bæta augabrúnirnar á aðeins 60 dögum. Hægt er að nota RapidBrow á hreina húð eða yfir förðun. RapidBrow er notað tvisvar á dag, kvölds og morgna og árangur sést eftir 6-8 vikur.

Hversu oft er RapidBrow borið á?
RapidBrow er borið á tvisvar á dag, kvölds og morgna.

Næst betri árangur ef RapidBrow er borið á oftar en tvisvar á dag?
Nei ekki næst betri árangur ef RapidBrow er borið á oftar en tvisvar á dag.

Hvað ef ég gleymi að bera RapidBrow á mig tvisvar á dag?
Ef gleymst hefur að nota RapidBrow, þá er í lagi að bera það á daginn eftir.

Til að sjá árangur skjótt er ráðlagt að bera serumið á tvisvar á dag í 8 vikur.
Hversu langan tíma tekur það að sjá árangur á augabrúnunum? Árangur sést eftir 4 vikur en mælt er með að halda áfram að nota RapidBrow í 60 daga til að sjá bestan árangur. Eftir það má minnka notkun niður í 3-4 sinnum í viku.

Er öruggt að nota RapidBrow svona nálægt augunum?
Já, RapidBrow er vottað af augnlæknum og er örugg vara. Hinsvegar eins og með allar aðrar snyrtivörur, þá gætu sumir einstaklingar fundið fyrir ertingu í húðinni eða ofnæmi fyrir efnum í formúlunni. Ef þú hefur grun um ofnæmisviðbrögð, hættu þá að nota vöruna og leitaðu til læknis.

Get ég notað RapidBrow þó svo ég sé með linsur?
Já, RapidBrow hefur engin áhrif á linsurnar.

Má setja augabrúnafarða yfir RapidBrow?
Já, en best er að leyfa RapidBrow að þorna í 1-2 mínútur áður en farði er settur á augabrúnirnar.

Má ég nota RapidBrow á litaðar augabrúnir?
Já, RapidBrow hefur engin áhrif á litinn á augabrúnunum.

Má ég nota RapidBrow ef ég er með húðflúraðar augabrúnir?
Já, RapidBrow hefur engin áhrif á húðflúrið.

Hvað á ég að gera ef ég fæ óvart RapidBrow í augun?
RapidBrow er ætlað augabrúnunum og varast skal beina snertingu við augun. Ef serumið fer í augun er best að skola þau með köldu vatni. Ef það veldur miklum óþægindum þá er æskilegt að leita til læknis.

Er eðlilegt að finna fyrir dofa/kláða/sviða við augabrúna línuna við notkun RapidBrow?
Sumir neytendur hafa fundið fyrir vægum kláða sem hefur horfið eftir 1-2 mínútur. Ef hann er ertandi og heldur áfram þá er æskilegt að leita til læknis.

Hvað gerist ef ég hætti að nota RapidBrow?
Þegar þú hefur náð þeim árangri sem þú ert ánægð/ur með, þá mælum við með að þú haldir áfram að nota RapidBrow til að viðhalda árangrinum.

Hversu lengi endist eitt stykki af RapidBrow?
Ef serumið er borið á eftir fyrirmælum endist eitt stykki af RapidBrow í um 2 mánuði.



Tengdar vörur