RapidLash augnháraserum 3 ml.

RapidLash augnháraserum nærir og styrkir augnhárin sem berjast gegn öldrun, umhverfi og hárlosi. Ekki prófað á dýrum. Án parabena og ilmefna.

Vörunúmer: 10129241
+
8.998 kr
Vörulýsing

RapidLash augnhára serum er verðlauna formúla sem eflir útlit augnháranna og gerir þau fallegri á aðeins 30 dögum. Hentar vel þeim sem eru með augnlinsur og augnháralengingu. RapidLash er borið í rót augnháranna einu sinni á dag, á kvöldin (eins og eyeliner). Til að sjá sem mestan árangur er ráðlagt að nota RapidLash í 4-8 vikur.

Hversu oft er RapidLash borið á?
RapidLash er borið á einu sinni á dag, á kvöldin.

Næst betri árangur ef RapidLash er borið á oftar en einu sinni á dag?
Nei, ekki næst betri árangur ef RapidLash er borið á oftar en einu sinni á dag.

Hvað ef ég gleymi að bera RapidLash á mig um kvöldið?
Ef gleymst hefur að nota RapidLash í eitt skipti þá er í lagi að bera það á kvöldið eftir. Til að sjá árangur skjótt er ráðlagt að nota serumið á hverju kvöldi í 8 vikur.

Hversu langan tíma tekur það að sjá árangur á augnhárunum?
Árangur sést á 4 vikum en mælt er með að halda áfram að nota RapidLash í 8 vikur til að sjá bestan árangur. Eftir það má minnka notkun niður í 3-4 sinnum í viku.

Er öruggt að nota RapidLash svona nálægt augunum?
Já, RapidLash er vottað af augnlæknum og er örugg vara. Hinsvegar eins og með allar aðrar snyrtivörur, þá gætu sumir fundið fyrir ertingu í húð eða ofnæmi fyrir efnum í formúlunni. Ef þú hefur grun um ofnæmisviðbrögð, hættu þá að nota vöruna og leitaðu til læknis.

Get ég notað RapidLash þó svo ég sé með linsur?
Já, RapidLash hefur engin áhrif á linsurnar.

Má setja augnfarða yfir RapidLash?
Já, en æskilegt er að bíða í 1-2 mínútur þar til serumið þornar áður en augnfarði er settur á.

Má ég nota RapidLash á lituð augnhár?
Já, RapidLash hefur engin áhrif á litinn á augnhárunum.

Má ég nota RapidLash ef ég er með augnháralengingar?
Já, RapidLash hefur engin áhrif á augnháralenginguna.

Hvað á ég að gera ef ég fæ óvart RapidLash í augun?
RapidLash er ætlað augnhárunum og varast skal beina snertingu við augun. Ef serumið fer í augun er best að skola þau með köldu vatni. Ef það veldur miklum óþægindum þá skal leita strax til læknis.

Er eðlilegt að finna fyrir kláða/ertingu/dofa við augnháralínuna við notkun RapidLash?
Sumir neytendur hafa fundið fyrir vægum kláða sem hefur horfið eftir 1-2 mínútur. Ef hann er ertandi og heldur áfram þá er æskilegt að leita til læknis.

Hvað gerist ef ég hætti að nota RapidLash?
Þegar þú hefur náð þeim árangri sem þú ert ánægð/ur með, þá mælum við með að þú haldir áfram að nota RapidLash til að viðhalda árangrinum.

Hversu lengi endist eitt stykki af RapidLash?
Ef serumið er notað á hverjum degi eftir fyrirmælum þá dugar eitt stykki í að meðaltali um 2 mánuði.




Tengdar vörur