SagaMemo er notað til að viðhalda góðu minni en kemur ekki í stað lyfja.
Hvannarfræja extrakt SagaMedica inniheldur mörg áhugaverð efni. Eitt þeirra er lífvirka plöntuefnið Imperatorin sem er mikið rannsakað vegna áhrifa þess á heilastarfsemi. Rannsóknir benda til þess að Imperatorin viðhaldi vitsmunalegri getu og styðji við langtíma minni.
Ginkgo Biloba hefur lengi verið notað til að viðhalda heilbrigðri heilastarfsemi, en það virkar m.a. með því að bæta blóðflæði til heilans. Einnig er það ríkt af andoxunarefnum.
Bacopa Monnieri getur bætt minni hjá annars heilbrigðum einstaklingum. Járn og sink stuðlar að eðlilegri vitsmunalegri starfsemi.
SagaMemo töflur eru framleiddar úr völdum ætihvannarfræjum ásamt bacopa og ginkgo biloba. Á tilraunastofu hefur verið sýnt fram á áhrif hvannarfræja á virkni asetýlkólínesterasa, en það er ensím sem brýtur niður taugaboðefnið asetýlkólín. Mörg lyf við Alzheimer's hindra virkni asetýlkólínesterasa til að auka magn asetýlkólíns. SagaMemo er talið seinka niðurbroti á asetýlkólíni.
SagaMemo er notað til að viðhalda góðu minni en kemur ekki í stað lyfja.
Ábyrgðaraðili: SagaNatura ehf.