KAL

KAL Crystal Magnesium duft 600 mg 225 gr.

Auðupptakanlegt magnesíum til að blanda við vatn. Magnesíum er mikilvægt fyrir eðlilega slökun vöðva og taugakerfis. Inntaka þess getur komið í veg fyrir sinadrætti og fótaóeyrð og stuðlað að betri nætursvefni. Hentar vel fyrir vefjagigtarsjúklinga. Duft sem gefur 600mg af hreinu magnesíum í hverjum skammti.

Vörunúmer: 10112071
+
4.999 kr
Vörulýsing

Auðupptakanlegt magnsíum til að blanda við vatn. Magnesíum er ásamt kalki og fosfór nauðsynlegt fyrir heilbrigð og sterk bein. Það er hvati til myndunar ýmissa ensíma í líkamanum, sérstaklega þeirra sem stjórna orkumyndun. Það er náttúrulega vöðvaslakandi, einnig nauðsynlegt fyrir starfsemi tauga. Skortur á magnesíum hefur áhrif á taugaboð og vöðvasamdrátt. Rannsóknir benda til hærri tíðni hjarta- og æðasjúkdóma hjá þeim sem hafa lítið af magnesíum í blóði. Einkenni magnesíumskorts geta m.a. lýst sér í minna mótstöðuafli gegn sjúkdómum, háþrýstingi, nýrnasteinum, fyrirtíðarspennu, þreytu og beinþynningu. Þá geta skotið upp kollinum vandamál tengd taugum og vöðvum, einnig lystarleysi, hraður hjartsláttur, flogaköst og krampar, þannig virðist sinadráttur t.d. tengjast magnesíumskorti.

Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.

Notkun

1 kúft teskeið í hvert glas.

Tengdar vörur