Mercola Magnesium L-Threonate 90 hylki

Magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem við fáum oft ekki nóg af úr fæðunni.Magtein eða magnesíum L-threonate nýtist líkamanum auðveldlega og rannsóknir benda til þess að það eigi greiðari leið upp í heila en önnur form af magnesíum. Magtein hefur ekki hægðalosandi áhrif og hentar því vel þeim sem eru viðkvæmir í maga.

Vörunúmer: 10142324
+
10.219 kr
Vörulýsing
Magnesíum hefur mörgum hlutverkum að gegna í líkamanum. Það kemur við sögu í yfir 300 efnahvörfum og því ákaflega mikilvægt til þess að öll líkamskerfi geti starfað rétt. Sem dæmi um hin mörgu hlutverk magnesíum má nefna:
 
  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvavirkni – einkum vöðvaslökun
  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega taugavirkni – einkum taugaslökun
  • Ómissandi þáttur orkuvinnslu í hverri einustu frumu líkamans
  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfssemi hjarta og æðakerfis – spilar t.d. mikilvægt hlutverk í að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi
  • Mjög mikilvægt fyrir beinheilsu – nauðsynlegt til að tryggja eðlilega beinþéttni og endurnýjun beina

Tengdar vörur