Sóley hrein hreinsimjólk 200 ml.

Mild en kröftug andlitsmjólk sem fjarlægir farða og óhreinindi sem safnast hafa yfir daginn. Einstök samsetning kvöldvorrósarolíu og villtra íslenskra jurta hreinsa, næra og mýkja húðina og valda ekki þurrki. hrein andlitsmjólkin er einkar rík af andoxunarefnum en það er vísindalega sannað að kvöldvorrósarolía viðheldur rakastigi húðar og heldur henni ungri og teygjanlegri.

Vörunúmer: 10106588
+
5.898 kr
Vörulýsing

Berið einn til tvo skammta af hreinsimjólkinni á þurra húðina og nuddið varlega með fingurgómum á andlit og háls. Mælt er með hringlaga hreyfingum út frá miðju andlits. Hreinsið af með heitu vatni og mjúkum klút. Hreinsun er gott að framkvæma kvölds og morgna. Fylgið eftir með frískandi nærð andlitsvatni til að fullkomna hreinsunina. Berið að lokum endurnærandi eyGLÓ andlitskrem á hreina húðina. Fyrir þurra og viðkvæma húð.

Notkun

Berið hreinsimjólkina á þurra húðina og nuddið varlega með fingurgómum á andlit og háls. Hreinsið af með heitu vatni. Fylgið eftir með frískandi nærð andlitsvatni til að fullkomna hreinsunina. Berið að lokum endurnærandi Eygló andlitskrem á hreina húðina. 

Innihald

Aqua (pure Icelandic spring water), Cocos Nucifera (coconut) Oil, Glyceryl Stearate, Cetearyl Alcohol, Stearic Acid, Sodium Lauroyl Gluamate, (vegetable) Glycerin, Sodium Levulinate, Sodium Anisate, Oenothera Biennis (evening primrose) Oil (therapeutic essential oil), Prunus Amygdalus Dulcis (sweet almond) Oil, Prunus Armeniaca (apricot) Kernel Oil, Glyceryl Caprylate, Betula Pubescens (birch) Twig Extract (wild Icelandic herb), Arctostaphylos Uva Ursi (bearberry) Leaf Extract (wild Icelandic herb), Achillea Millefolium (yarrow) Extract (wild Icelandic herb) Xantham gum, Tocopherol (vitamin E), Salix Phylicifolia (willow) Extract (wild Icelandic herb), Boswellia Carterii (frankincense) Oil (therapeutic essential oil)

Tengdar vörur