Vivag kvenþurrkur 15 stk.

Vivag® blautklútar eru mildir og mjúkir klútar sem hreinsa húðina þegar vatn og sápa eru ekki tiltæk. Vivag® blautklútar henta vel viðkvæmri húð kynfærasvæðisins. Þeir tryggja að húðin þorni ekki og veita hreinlætistilfinningu. Vivag® blautklútar innihalda mjólkursýru, sem tryggir eðlilegt jafnvægi. Lágt sýrustig þeirra (pH 4,5) er í samræmi við sýrustig kynfærasvæðisins.

Vörunúmer: 10082793
+
1.066 kr
Vörulýsing

Auk þess að vera ákjósanlegir fyrir líkamann eru Vivag® blautklútar vistvænir, því þeir brotna niður í náttúrunni. Við framleiðslu þeirra er tekið tillit til umhverfisins, velferðar dýra og vistkerfa. Óhætt er að sturta þeim niður í salerni, þó ekki fleiri en fimm í einu.

Tíður þvottur á kynfærasvæði með sterkum sápuefnum svo sem sturtusápu, venjulegri handsápu, hársápu o. fl. getur leitt til ertingar, sviða og kláða í húðinni. Húðin getur einnig þornað og jafnvel sprungið. Því ætti ávallt að nota milda, til þess gerða sápu með lágt sýrustig (um það bil pH 4, eins og á kynfærasvæðinu), án ilmefna, litarefna og rotvarnarefna, svo eðlilegt jafnvægi svæðisins raskist ekki.

Húðin er gerð úr nokkrum lögum. Efsta lagið (yfirhúðin) er úr hornfrumum og varnarefnum (fituefnum). Ef sterkar sápur eru notaðar er hætta á að ójafnvægi myndist í húðinni og að mikilvæg fituefni, sem vernda húðina og halda henni rakri, séu þvegin burt.

  • Án litarefna
  • Án rotvarnarefna (einnig paraben)
  • Inniheldur mjólkursýru
  • Lágt sýrustig (pH 4)
  • Inniheldur efni sem viðhalda raka húðarinnar
  • Kemur aftur á eðlilegu ástandi og verndar það
  • Hentar sérstaklega vel fyrir þurra, erta og viðkvæma húð
  • Sápan er þykk og drjúg í notkun
  • Stútnum er lokað með himnu sem ver innihaldið fyrir bakteríum
  • Má nota daglega

Tengdar vörur