Wrinkles schminkles ennisplástur 1 stk. #Small

Ennisplásturinn hjálpar þér að ná góðri lyftingu og fyllingu jafnframt því sem hann vinnur gegn hrukkum og fínum línum sem áður voru erfiðar viðureignar. Hvort sem þær koma til vegna öldrunar, endurtekinna andlitshreyfinga eða svefnstöðu þá hjálpar plásturinn til við að minnka og slétta úr hrukkunum. Hann faðmar hreinlega ennið og hjálpar til við að koma í veg fyrir að það krumpist eða myndi hrukkur. Á sama tíma styður plásturinn við náttúrulega hæfni húðarinnar til að viðhalda raka, örva blóðflæði og auka kollagenframleiðslu. Plásturinn sýnir virkni strax við fyrstu notkun og enn betri árangur með langtímanotkun.

Vörunúmer: 10167472
30% afsláttur
+
2.729 kr 3.898 kr
Vörulýsing

Við mælum með
Þrífið plástrana eftir notkun með Sílikonplástra sápunni okkar. Sápan er sérstaklega hönnuð til þess að leysa upp húðfitu og dauðar húðfrumur sem safnast fyrir í plástrunum án þess að tæra upp límið. Þetta eykur endingartíma plástranna til muna.

Rannsókn var gerð á 92 þátttakendum á aldursbilinu 35-74 ára:

  • 90% upplifðu sléttara ennissvæði
  • 90% upplifðu stinnari húð 
  • 92,1% upplifðu aukinn raka

Notkun

1. Hreinsið og þurrkið húðina vel. Varist að setja einhverskonar húðvörur á tiltekin svæði

2. Fjarlægið plastfilmu plástursins til að afhjúpa límið

3. Leggið plásturinn á rétt svæði. Límhlið snýr að húð

4. Notið plásturinn yfir nótt til að ná sem bestum árangri eða í 1-2 klukkustundir yfir daginn til að fríska upp á þreytta húð

5. Eftir notkun skal fjarlægja plásturinn varlega af og líma á spjaldið sem fylgir pakkningunni

Innihald

100% hágæða læknasílikon

Plástrarnir okkar eru gerðir með sömu tæki og læknasílikon sem notað er á skurði eftir aðgerðir.

Galdurinn bakvið læknasílikon er að það gerir húðinni kleift að halda sinni náttúrulegu hæfni og viðhalda raka. Bilið sem myndast á milli plásturs og húðar örvar blóðflæði og eykur kollagenframleiðslu sem stuðlar að heilbrigðari og unglegri húð

Tengdar vörur