Ljómi og endurnýjun í hverjum dropa – náttúrulegur retinol valkostur með C-vítamíni. Olíublanda sem sameinar náttúrulegt Bio-Retinol og C-vítamín sem saman vinnur gegn merkjum öldrunar, ójafnri áferð og daufum húðlit. Bio-Retinol er unnið úr Bidens pilosa plöntunni og er náttúrulegri og mildari valkostur heldur en hefðbundið retínól, en örvar samt sem áður frumumyndun og dregur úr fínum línum á áhrifaríkan hátt. C-vítamínið gefur húðinni aukinn ljóma, jafnar húðlit og örvar kollagenmyndun án ertingar. Rosehip olían er rík fitusýrum eins og omega-6 og omega-3 og heldur húðinni vel nærðri og gefur henni aukinn raka, ásamt því að örva endurnýjun húðfruma.
Þetta serum er sérstaklega gott fyrir þreytta, ójafna eða slappa húð sem þarfnast ljóma og orku. Það hefur létta og mjúka áferð sem húðin dregur fljótt í sig án þess að skilja eftir sig olíukennda áferð. Fullkomið sem „booster“ með daglegri húðrútínu – hvort sem það er eitt og sér eða blandað við rakakrem.
100% náttúrulegt – 92,5% lífrænt – Vegan og cruelty-free.