BIOEFFECT EGF Essence 100 ml.

BIOEFFECT EGF ESSENCE er létt, nærandi andlitsvatn sem eykur mýkt, raka og heilbrigði húðarinnar ásamt því að undirbúa hana fyrir það BIOEFFECT serum eða rakakrem sem á eftir kemur og auka EGF virkni þeirra.

Vörunúmer: 10154802
+
10.490 kr
Vörulýsing

BIOEFFECT EGF ESSENCE smýgur hratt inn í húðina og er uppfullt af virkum efnum sem draga úr hrörnun húðarinnar. Það veitir nauðsynlegan raka og hentar því best á hreina húð fyrir notkun á BIOEFFECT serum og/eða rakakremi, til að auka EGF áhrif þeirra. Hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna.

Notkun

Hellið lófafylli af essence í hendina, um það bil 2-4 skvettur, og þrýstið mjúklega inn í húð háls og andlits. Notið BIOEFFECT serum eða rakakrem að eigin vali á eftir.

Innihald
  • BIOEFFECT EGF — Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. BIOEFFECT EGF hjálpar til við að örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
  • Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
  • Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.


Innihaldsefnalisti
WATER (AQUA), GLYCERIN, ISOPENTYLDIOL, PROPYLENE GLYCOL, SODIUM CITRATE, SORBITOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Tengdar vörur