- Inniheldur EGF Eye Serum í fullri stærð (6 ml) og áfyllingu (6 ml)
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Dregur úr þrota, þreytumerkjum og slappleika
- Nærir húðina
- Þéttir og sléttir húðina
- Eykur ljóma
- Kælandi stálkúla sem vinnur á þrota
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
BIOEFFECT EGF Eye Serum með áfyllingu 2x6 ml.
EGF Eye Serum er nú fáanlegt ásamt áfyllingu. Þú kemur áfyllingarhylkinu einfaldlega fyrir í flöskunni og heldur áfram að njóta þessarar áhrifaríku augnvöru. EGF Eye Serum er sérstaklega þróað til að vinna á ásýnd fínna lína og hrukka og gera húðina umhverfis augun þéttari og sléttari ásýndar. Á flöskunni er einnig kælandi stálkúla sem dregur úr þrota og þreytumerkjum. Settið inniheldur EGF Eye Serum í fullri stærð (6 ml) og áfyllingarhylki (6 ml). Tvöfalt magn á 15% lægra verði!
Þrýstu létt á hnappinn á botni flöskunnar til að skammta augnserumi og berðu á hreina húð umhverfis augun. Rúllaðu stálkúlunni eftir húðinni og nuddaðu mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Láttu ganga inn í húðina áður en farði eða sólarvörn eru borin á andlitið.
Til að koma áfyllingarhylkinu fyrir skaltu draga hvíta hylkið út úr botninum á flöskunni. Fjarlægðu lokið af áfyllingunni og smelltu hylkinu inn í flöskuna. Þrýstu varlega þar til þú heyrir smell.
- EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
- Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
- Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
- Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.
Innihaldsefnalisti
WATER (AQUA), GLYCERIN, BUTYLENE GLYCOL, CARBOMER, SODIUM CHLORIDE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, SODIUM DEHYDROACETATE, SODIUM HYALURONATE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.