BIOEFFECT Hydrating Cream 50 ml.

BIOEFFECT HYDRATING CREAM er olíulaust rakakrem sem inniheldur aðeins 16 innihaldsefni. Gefur djúpan og langvarandi raka. Eykur rakastig húðarinnar um allt að 35% eftir aðeins tvö skipti* og rakinn helst í húðinni í 12 tíma* Hér er á ferðinni rakakrem úr tæru íslensku vatni sem inniheldur einnig EGF úr byggi, hýalúrónsýru og E-vítamín og gerir húðina mjúka og áferðarfallega.  Rakakremið má nota bæði kvölds og morgna og er því frábær viðbót við BIOEFFECT húðrútínuna. Hægt að nota eitt sér eða yfir uppáhalds BIOEFFECT serumið til að auka raka og næringu.

Vörunúmer: 10161291
+
12.990 kr
Vörulýsing
Helstu eiginleikar:
  • Djúpur og langvarandi raki sem endist í 12 tíma*
  • Eykur rakastig húðarinnar um allt að 35% eftir aðeins 2 skipti*
  • Olíulaus og létt formúla sem gengur hratt inn í húðina 
  • Andoxunarefni sem veita vörn gegn skaðlegum umhverfisáhrifum 
  • Gerir húðina mjúka, ljómandi og áferðarfallega
  • Hægt að nota eitt sér eða yfir uppáhalds BIOEFFECT serum 
  • Aðeins 16 innihaldsefni
Hentar öllum húðgerðum
Án ilmefna, alkóhóls, olíu og parabena
 
*Vísindaleg innanhússrannsókn þar sem þátttakendur báru BIOEFFECT Hydrating Cream á hálft andlitið
 
Lykilinnihaldsefni 
Hýalúrónsýra – Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húð okkar og megintilgangur þess er að bindast vatni. Gegnir mikilvægu hlutverki í að halda húðinni heilbrigðri og frábær rakagjafi fyrir allar húðgerðir. 
 
E-vítamín er eitt öflugasta andoxunarefni húðarinnar. Það er fyrirfinnst náttúrlega í húðinni en magn þess getur minnkað með tíð og tíma. Nauðsynlegt vopn í baráttunni við sindurefni auk þess að bæta húðáferð og litarhaft. 
 
EGF (Epidermal Growth Factor) úr byggi – Fyrsta prótín sinnar tegundar sem framleitt er í byggi. Vísindamenn BIOEFFECT þróuðu þetta einstaka innihaldsefni til að koma til móts við það tap sem verður á EGF í húðinni þegar við eldumst. EGF úr byggi styður við náttúrulega framleiðslu húðarinnar á kollageni og er því nauðsynlegt til að viðhalda heilbrigðu og unglegu yfirbragði hennar. .
Notkun

Berið á hreina húð á andliti og hálsi, kvölds og morgna, og nuddið mjúklega inn í húðina.

Innihald
  • Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
  • E-vítamín — Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.
  • Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Listi yfir innihaldsefni:
WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, DL-ALPHA TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Tengdar vörur