BIOEFFECT Facial Cleanser 120 ml.

Andlitshreinsinn er spennandi nýjung í flokki húðhreinsa. Hann er sérstaklega þróaður til að veita djúpa og góða hreinsun í einu skrefi. Andlitshreinsirinn fjarlægir farða, sólarvörn og óhreinindi af húðinni án þess að þurrka hana eða valda ertingu. Hann er mildur en áhrifaríkur hreinsir fyrir allar húðgerðir. Andlitshreinsirinn hefur geláferð sem síðan verður mjólkurkennd þegar hún kemst í snertingu við vatn (e. gel-to-milk).

Vörunúmer: 10169660
+
6.990 kr
Vörulýsing

Eiginleikar og áhrif
Djúpvirkandi og rakagefandi andlitshreinsir sem nærir húðina.

Líkt og aðrar vörur BIOEFFECT hentar Facial Cleanser öllum húðgerðum, jafnvel mjög viðkvæmri húð, enda inniheldur varan aðeins fá, hrein og sérvalin efni. Þar má einkum nefna lykilinnihaldsefnin squalane, betaglúkan úr byggi, glýserín og íslenskt vatn. Í sameiningu hafi þessi áhrifaríku efni afar hreinsandi og nærandi áhrif á húðina, styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og efla getu hennar til að viðhalda raka.

Andlitshreinsirinn fjarlægir farða, sólarvörn, olíur og óhreinindi af húðinni án þess að þurrka eða valda ertingu. Andlitshreinsirinn er án ertandi efna á borð við ilmefni, alkóhól og sílíkon. Niðurstaðan er mildur en áhrifaríkur hreinsir fyrir allar húðgerðir.

  • 98% þátttakenda voru sammála því að húðin væri hrein og endurnærð eftir notkun*
  • 96% þátttakenda myndu mæla með andlitshreinsinum*

*Samkvæmt innanhússrannsókn þar sem þátttakendur notuðu Facial Cleanser tvisvar á dag í tvær vikur.

  • Nærandi ‘gel-to-milk' andlitshreinsir með squalane
  • Fjarlægir farða, óhreinindi og SPF í einu skrefi
  • Skilur húðina eftir hreina, vel nærða og silkimjúka
  • Þurrkar ekki húðina né ertir
  • Án ilmefna, alkóhóls, sílíkons, parabena og glútens
  • Hentar öllum húðgerðum, tilvalinn fyrir þurra og viðkvæma húð

Stærð: 120ml.

Notkun

Pumpaðu 1-2 pumpum af hreinsinum í lófann, eða eins mikið og þér finnst þörf á. Gott er að hita hreinsinn með því að nudda lófunum saman í nokkrar sekúndur áður
en hann er borinn á andlitið. Berðu hann á þurrt andlitið og nuddaðu mjúklega með fingurgómunum í 30-60 sekúndur. Bleyttu hendurnar með vatni og nuddaðu andlitið, þar til hreinsirinn fær mjólkurkennda áferð. Skolaðu af með vatni.

 

Tengdar vörur