BlephaGel við hvarmabólgu 30 gr.

Blephagel er dauðhreinsað kælandi vatnskennt gel til daglegrar hreinsunar á viðkvæmum, þurrum eða klístruðum augnlokum og augnhárum. Það vinnur vel á hvarmabólgu og frjókornaofnæmi. Það er ofnæmisprófað af bæði augnlæknum og húðsjúkdómalæknum. Þróað í samvinnu við húð- og augnlækna.

Vörunúmer: 10123001
+
3.648 kr
Vörulýsing

Blephagel er einnig rakagefandi og mýkjandi fyrir augnlokin án þess að hafa áhrif á náttúrulegt ph-gildi húðarinnar. Það er án rotvarnarefna, ilmefna og alkóhóls og er hvorki feitt né
klístrað.

Mælt er með því að nota Blephagel bæði kvölds og morgna eða eins oft og þörf er á. Gelinu er nuddað varlega á lokað augnlokið og augnhárarætur með hringhreyfingum. Þannig leysist upp slím og agnir sem síðan eru þurrkaðar af með hreinni grisju en ekki skolað af.

Blephagel kemur í ABAK fjölskammtatúpu með Steri-Free tækni sem heldur gelinu dauðhreinsuðu allan notkunartímann. Því má nota gelið í 2 mánuði eftir að túpan er opnuð.

Hvarmabólga er líklega einn algengasti augnsjúkdómurinn á Íslandi. Hann er talinn vera ofnæmi fyrir bakteríum sem við erum öll með á hvörmunum. Ofnæmið veldur bólgu í hvörmum, með roða og þrota sem truflar oft starfsemi fitukirtla. Fiturkirtlarnir búa til fitubrák ofan á tárunum svo þau haldist og smyrji næganlega, annars gufa tárin hratt upp og renna niður kinnarnar. Því eru þurr augu oft fylgifiskur hvarmabólgu.

Hvarmabólga getur einnig valdið augnloksþrymlum eða vogris og þá geta lyf einnig stuðlað að hvarmabólgu t.d. sum krabbameinslyf og húðþrymlalyf en hvarmabólga er afar algeng í ýmsum húðsjúkdómum, s.s. flösuexemi og rósroða, enda eru hvarmarnir húðfellingin í kringum augun.

Helstu einkenni hvarmabólgu:

  • Sviði
  • Óskýr sjón
  • Aðskotahlutstilfinning, pirringur
  • Smákláði
  • Roði í hvörmum og augum
  • Óþægindi í augum eftir tölvuvinnu, lestur eða við áhorft á sjónvarp
  • Bjúgur á hvörmum


Oft er erfitt að greina á milli einkenna hvarmabólgu og þurra augna. Þurr augu og hvarmabólga koma oft fram saman og þarf því oft að meðhöndla hvort tveggja. Daglegt hreinlæti á augum er afar mikilvæg í bland við heita bakstra fyrir árangursríka meðferð á mismunandi augnvandamálum eins og hvarmabólgu, þurrum augum, slími vegna ofnæmis o.fl. Blephaclean og Blephagel eru klínískt viðurkenndar vörur sem virka vel og létta fólki lífið.


Notkun

Mælt með að nota vegna hvarmabólgu: Tvisvar sinnum á dag fyrstu þrjár vikunar og eftir það einu sinni á dag.

Tengdar vörur