Blephaclean blautpúðar við hvarmabólgu 20 stk.

Blephaclean er dagleg augnloksþurrka sem inniheldur milda, micellarlausn, lausa við rotvarnarefni, parabena, sápu og ilmefni.  Blephaclean klútarnir halda augnlokunum hreinum um leið og þeir passar húðina í kringum augun og náttúrulegar bakteríum hennar. Blephaclean klútarnir eru notaðir til að meðhöndla einkenni hvarmabólgu sem er almennt tengd augnþurrki og truflun á meibómikirtlum.1

Hvarmabólga er líklega einn algengasti augnsjúkdómurinn á Íslandi. Hann er talinn vera ofnæmi fyrir bakteríum sem við erum öll með á hvörmunum. Ofnæmið veldur bólgu í hvörmum, með roða og þrota sem truflar oft starfsemi fitukirtla.

Vörunúmer: 10123002
+
2.898 kr
Vörulýsing
  • Mjúkar, rotvarnarefnislausar þurrkur
  • Dregur úr einkennum hvarmarbólgu sem oft eru tengd augnþurrki og truflun á meibómikirtlum2
  • Blephaclean dregur úr örveruálagi á augnlokið eftir 3 daga notkun.4
  • CE merkt lækningatæki

Fiturkirtlarnir búa til fitubrák ofan á tárunum svo þau haldist og smyrji næganlega, annars gufa tárin hratt upp og renna niður kinnarnar. Því eru þurr augu oft fylgifiskur hvarmabólgu.

Hvarmabólga getur einnig valdið augnloksþrymlum eða vogris og þá geta lyf einnig stuðlað að hvarmabólgu t.d. sum krabbameinslyf og húðþrymlalyf en hvarmabólga er afar algeng í ýmsum húðsjúkdómum, s.s. flösuexemi og rósroða, enda eru hvarmarnir húðfellingin í kringum augun.

Helstu einkenni hvarmabólgu:

  • Sviði
  • Óskýr sjón
  • Aðskotahlutstilfinning, pirringur
  • Smákláði
  • Roði í hvörmum og augum
  • Óþægindi í augum eftir tölvuvinnu, lestur eða við áhorft á sjónvarp
  • Bjúgur á hvörmum


Oft er erfitt að greina á milli einkenna hvarmabólgu og þurra augna. Þurr augu og hvarmabólga koma oft fram saman og þarf því oft að meðhöndla hvort tveggja. Daglegt hreinlæti á augum er afar mikilvæg í bland við heita bakstra fyrir árangursríka meðferð á mismunandi augnvandamálum eins og hvarmabólgu, þurrum augum, slími vegna ofnæmis o.fl. Blephaclean og Blephagel eru klínískt viðurkenndar vörur sem virka vel og létta fólki lífið.


Notkun
  • Blephaclean þurrkur henta börnum eldri en 3ja mánaða.
  • Fjarlægja skal linsur fyrir notkun.
  • Fyrir hreinlæti augnloka og augnhára:
  • Berið púðann varlega á augnlokin og botn augnháranna. Nuddaðu augnlokin varlega með litlum hringlaga hreyfingum, fjarlægðu varlega allt gróft eða farða.

Fyrir hreinlæti á brún augnloka:

  • Opnaðu augnlokin varlega fyrir framan spegil með því að toga létt í augnhárin. Vefjið þurrkunni utan um vísifingur og nuddaðu varlega brún augnloksins.
Innihald

Capryloyl Glycine, Sodium Hyaluronate, PEG 8, Poloxamer 184, Polysorbate 20, Propylene Glycol, Hydrocotyl Extract (Propylene Glycol, Centella Asiatica Extract and Water), Preservative-free sebum-regulating complex (Propylene Glycol), Iris Florentina Root Extract, Zinc Sulphate, PPG-5 Ceteth 20 and Retinyl Palmitate (Vitamin A, Alcohol and Water), PEG 6 Caprylic/Capric Glycerides (i.e. Macrogol 6 Glycerol Caprylocaprate), Dipotassium Phosphate, Sodium Hydroxide, Potassium Dihydrogen Phosphate, Purified Water.

Tengdar vörur