ChitoCare Medical Græðandi Sprey 50 ml.

ChitoCare® medical Græðandi Spray- Til meðferðar á ertri og skaddaðri húð
 
  • Verndar húðina
  • Græðir minniháttar sár
  • Dregur úr sviða, roða og kláða
  • Hefur góð áhrif á væg brunasár
  • Virkar vel á sólbruna
  • Náttúrulega græðandi
Vörunúmer: 10163534
+
5.698 kr
Vörulýsing
ChitoCare® medical inniheldur náttúrulegt kítósan sem er örugg, lífvirk fjölliða, einangruð úr auðlindum sjávar við Íslandsstrendur. Kítósan er undur úr hafinu og samanstendur af amínósykrum sem finnast náttúrulega í líkamanum og hefur þannig góðan lífsamrýmanleika. Kítósan myndar filmu, binst húðinni sem þarfnast verndar. Ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar.
 
Græðandi Sprey sefar einkenni svo sem kláða og roða, verndar húðina og stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Gott á væg sár og brunasár, sólbruna, bólur (unglingabólur), húðútbrot, þurra húð, flugnabit og húðbólgur. Áhrifarík skyndihjálp. Má einnig nota á húð til styrkingar, verndar og í forvarnarskyni. Hentar fyrir alla aldurshópa, einnig eldra fólk og börn.
 
ChitoCare medical hefur reynst einstaklega vel til að meðhöndla bit eftir lúsmý, bitmý og önnur skordýr sem leynast í náttúru Íslands.
 
Það dregur úr kláða, roða og öðum óþægindum sem koma fram eftir lúsmýbit.
 
ChitoCare® medical  Græðandi Sprey (REF 84500) er CE merkt lækningatæki í samræmi við tilskipun ESB 93/42/EEC og reglugerð 934/2010 um lækningatæki.

Tengdar vörur