HVAÐ ER COLLAGEN?
Collagen (kollagen) er eitt aðal uppbyggingar prótein líkamans. Collagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum. Einnig er Collagen mjög stór partur af húð, hári og nöglum. Collagen prótein sjá til þess að vefir líkamans haldist sterkir. Líkaminn framleiðir Collagen en um 25 ára aldur fer að hægjast verulega á framleiðslunni, að meðaltali um 1,5% á hverju ári, eins og sjá má á línuritinu hér til hliðar.
Þegar kollagen framleiðslan minnkar byrja vefir líkamans að veikjast og það fer að bera á ýmsum öldrunar einkennum svo sem verkjum í liðum og liðamótum. Einnig byrja að myndast hrukkur og teygjanleiki í húð minnkar.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að með inntöku á kollagen próteini er hægt að minnka verki í liðum og draga verulega úr hrukkumyndun.
Ábyrgðaraðili: Feel Iceland ehf.