Iceherbs Hálsmixtúra lakkrís 200 ml.

Fjallagrasa hálsmixtúra með lakkrísbragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Hálsmixtúran inniheldur fjölsykrur sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar. Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran lakkrís sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.

Vörunúmer: 10139905
+
1.829 kr
Vörulýsing

Fjallagrasa hálsmixtúra með lakkrísbragði er án alkóhóls og hentar börnum frá eins árs aldri.

Fjallagrasa mixtúrurnar eru góð vörn gegn hósta og hvers konar óþægindum í hálsi, því þær innihalda fjallagrös sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi.

Fjallagrasa hálsmixtúrur höfða til allra en þær eru sérstaklega góðar fyrir þá sem reyna mikið á röddina, t.d. söngvara, ræðumenn og kennara.

Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsumixtúrur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.

Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningarmáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.

Notkun

Hristist fyrir notkun. 1 matskeið (10) ml) 3-5 sinnum á dag handa fullorðnum. 1 teskeið (5 ml) 3-5 sinnum á dag handa börnum eldri en 1 árs.

Innihald

Vatn, maltítólsýróp, glúkósasíróp, fjallagrasaþykkni (20%), lakkrískjarni, ammóníumklóríð, mentól og eucalyptus.

Tengdar vörur