Iceherbs Sofðu Rótt 60 hylki

Sofðu rótt inniheldur jurtina Magnolia. Rannsóknir á Magnoliu hafa sýnt að hún inniheldur virk efni sem vitað er að hafa áhrif á andlegt jafnvægi. Magnolia er þekkt fyrir að virka almennt slakandi og róandi, og á að bæta eðlilegan og samfelldan svefn. Magnolia vinnur gegn kvíða og þunglyndi og dregur úr stressi.  Þessi öfluga blanda hentar vel fyrir þá sem vilja aðstoð við að ná betur jafnari og samfelldum svefni og bæta andlega líðan. Mælt er með því að taka Sofðu rótt með kvöldmat eða um 1-2 klst fyrir svefn.

Vörunúmer: 10137766
+
2.399 kr
Vörulýsing

Magnolia officinalis vex í fjallendi í Kína og hefur verið notuð um aldir við þunglyndi, svefnvandamálum og kvíða. Virku efnin eru í berkinum og er því líka talað um Magnoliubörk en þau virðast örva boðefnið acetylcholine í heilanum og koma jafnvægi á hormónið cortison sem stýrir m.a. vöknun. Það leiðir síðan til að fólk slakar betur á, sem bætir svefn og vinnur einnig gegn kvíða og þunglyndi. Betri andleg líðan styrkir líka ónæmiskerfið og hjálpar því fólki að takast á við áskoranir hins daglega lífs eins og ofneyslu af ýmsu tagi.

Rannsóknir á Magnoliu hafa sýnt að hún inniheldur nokkur efni, .þ.á.m. honokiol og magnolol, sem vitað er að hafa áhrif á andlegt jafnvægi og virka almennt slakandi og róandi og bæta eðlilegan og samfelldan svefn. Magnolia vinnur einnig gegn kvíða og þunglyndi og dregur úr stressi. Hentar vel fyrir þá sem vilja aðstoð við að ná betur jafnari og samfelldum svefni og bæta andlega líðan.

Magnoliuhylkin frá Íslenskum fjallagrösum innihalda 85% mulinn magnoliubörk og 15% mulin fjallagrös, sem hjálpar til við meltingu og upptöku andoxunarefna úr meltingarveginum.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.

Notkun
  • Takið 1-2 hylki á dag með vatni.
  • Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
  • Geymið þar sem börn ná ekki til.
Innihald

Varan inniheldur 60 hylki.

Hvert hylki inniheldur:

  • Hrein magnolía 450 mg.
  • íslensk fjallagrös 80 mg.
  • Engin aukaefni
  • Hylkin eru úr jurtabeðmi (vegan).

Tengdar vörur