Licener lúsa-og nita sjampó 100 ml. Virkar á 10 mínútum!

Licener er lúsasjampó sem er auðvelt í notkun og drepur bæði höfuðlús og nit hennar í einungis einni meðferð. Meðferðin tekur aðeins 10 mínútur! Sjampóið inniheldur Neem ekstrakt og er virkni þess staðfest í klínískum rannsóknum. Höfuðlúsin kafnar og varnarskel nitarinnar brotnar niður.

Vörunúmer: 10122303
+
2.999 kr
Vörulýsing

Eyðing bæði höfuðlúsar og nitar, í einni meðferð, hefur verið rannsökuð ítarlega og hefur verið sýnt fram á 100% virkni. Vegna verkunarmáta Licener geta lýs ekki myndað ónæmi gagnvart Licener, ólíkt mörgum öðrum meðferðarúrræðum við höfuðlús.

Licener þarf að bera í þurrt hár og er auðvelt að skola úr hárinu. Ekki er þörf á að kemba eða þvo hárið með hefðbundnu sjampói eftir meðferðina, og er sjampóið ekki framleitt úr olíu- eða fituefnum.

Licener er milt sjampó og er það ekki eldfimt. Virkni Licener er byggð á náttúruefni; Neem ekstrakti. Ekstraktið smýgur djúpt inn í öndunarfæri lúsarinnar. Þar sem hjarta lúsarinnar slær mjög hratt fær hún ekki nóg súrefni og efnaskipti hennar ruglast algerlega sem leiðir til dauða hennar innan mínútna. Extraktið hylur nitina og brýtur niður varnarhjúp sem umlykur lirfuna. Fyrir vikið drepur Licener bæði höfuðlúsina og nit hennar í einni meðferð.



Notkun

SKREF 1: Berið Licener sjampó í þurrt hár. Notið nægilega mikið af sjampóinu til að þekja allt hárið. Magnið sem nota þarf ræðst af sídd hársins, en metta þarf allt hárið niður í hársvörð. Nuddið sjampóinu vel inn og látið það bíða í hárinu í 10 mínútur til að virka. Ef margir fjölskyldumeðlimir hafa smitast af höfuðlús skal reyna að meðhöndla þá alla með Licener sama daginn, til að fyrirbyggja ný smit.

SKREF 2: Skolið Licener sjampóið úr hárinu. Skolið sjampóið vandlega úr hárinu með volgu vatni. Eins og við á um öll sjampó skal forðast að það berist í augu og slímhúðir. Ekki er nauðsynlegt að þvo hárið með venjulegu sjampói eftir meðferð með Licener. Ef óskað er má kemba hárið með lúsakambi eftir meðferðina, til að fjarlægja dauðar lýs og dauða nit.

Tengdar vörur