Pharmaeris A Hyaluronic - Sensilium Hyaluronic Acid IN WATER CREAM 40 ml.

Rakabomba fyrir þurra húð. Berist á andlit, augnsvæðið, háls og bringu og þurrkur hverfur eins og dögg fyrir sólu. Þetta krem hentar öllum húðgerðum einnig þeim sem hafa viðkvæma húð sem hættir til að fá ofnæmi, þurrk eða roða og ertingu. Sefar húð sem er útsett fyrir frjókornaofnæmi.

Vörunúmer: 10155819
+
2.923 kr
Vörulýsing
  • 95% veitir öflugan raka
  • 95% sefar ertingu
  • 90% húðin verður sléttari
  • 81% endurnærir
  • 86% verndar gegn þurrki
  • 95% gefur góða tilfinningu í húðina

Öflug innihaldsefni Immonu-Prebiotic og Lukine barrier styrkja efsta lag húðarinnar og koma í veg fyrir þurrk, ertingu og flögnun. Dregur úr viðkvæmni húðarinnar og ofnæmi af völdum frjókorna sem dæmi. 

Öryggi vörunnar: Virkni og öryggi vörunnar fyrir viðkvæma húð og þau sem fá ofnæmi hefur verið prófað og sannreynt af húðlæknum*

  • Ofnæmisprófað
  • Klínískt prófað
  • Þróað fyrir viðkvæma húð

A vörulínan frá Pharmaceris er sérstaklega ætluð þeim sem eru með viðkvæma húð og fyrir þá sem fá ofnæmi. Þessi vörulína inniheldur virk innihaldsefni sem hjálpa til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar. Línan hjálpar til við að róa og sefa viðkvæma húð um leið og hún styrkir verndandi yfirborð húðþekjunnar. Þannig kemur hún í veg fyrir ofurviðkvæmni húðarinnar og dregur úr exemi, ertingu, roða, kláða og brunatilfinningu. Húðin verður heilbrigðari, mýkri og frískari. Án aukaefna sem geta ert húðina. Þessi Pharmaceris lína inniheldur einstök einkaleyfisvarin innihaldsefni Immuno-Prebiotic og Leukine-Barrier.

Eins og aðrar vörur Pharmaceris hafa allar vörurnar í þessari línu verið ofnæmisprófaðar af húðlæknum og klínískt prófaðar. Öryggi og árangur varanna fyrir viðkvæma húð og ofnæmishúð hefur verið staðfestur með rannsóknum. Varan er fyrir: Ofnæmishúð, húð sem er viðkvæm fyrir utanaðkomandi áreiti (frosti, vindi, hita, sólargeislum) eða húð sem þolir illa snyrtivörur.

Notkun

Berið dagleg á hreina húðina bæði kvölds og morgna. Berið á andlit, augnsvæði, háls og bringu. Hentar vel sem farðaundirlag eða pimer. 

Innihald
  • Hyaluronic acid and Pro Glucose – Öflugur rakagjafi sem nær djúpt ofan í húðina. Þurrkur hverfur um laið og húðin verður mjúk.
  • Immuno Previotic Formula – Sefar ertingu og dregur úr viðkvæmni húðarinnar. Styrkir mótstöðuafl húðarinnar.
  • Leukine Barrier Formula – Stuðlar að jafnvægi ónæmiskerfis húðarinnar og sefar ertingu.
  • *In vivo rannsóknir framvæmdar af utanaðkomandi rannsóknarstofa eftir 4 vikna notkun.

Tengdar vörur