Pharmaceris A Prebio Sensilique Micellar water 200 ml.

A-Prebio Micellar hreinsivatn og toner í einu fyrir viðkvæma og ofnæmishúð. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af andliti og augum. Án ilmefna, litarefna, sápu og parabena.

Vörunúmer: 10155820
+
1.877 kr
Vörulýsing

A vörulínan frá Pharmaceris er sérstaklega ætluð þeim sem eru með viðkvæma húð og fyrir þá sem fá ofnæmi. Þessi vörulína inniheldur virk innihaldsefni sem hjálpa til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar. Línan hjálpar til við að róa og sefa viðkvæma húð um leið og hún styrkir verndandi yfirborð húðþekjunnar. Þannig kemur hún í veg fyrir ofurviðkvæmni húðarinnar og dregur úr exemi, ertingu, roða, kláða og brunatilfinningu. Húðin verður heilbrigðari, mýkri og frískari. Án ilmefna og aukaefna sem geta ert húðina. Þessi Pharmaceris lína inniheldur einstök einkaleyfisvarin innihaldsefni Immuno-Prebiotic og Leukine-Barrier.

Eins og aðrar vörur Pharmaceris hafa allar vörurnar í þessari línu verið ofnæmisprófaðar af húðlæknum og klínískt prófaðar. Öryggi og árangur varanna fyrir viðkvæma húð og ofnæmishúð hefur verið staðfestur með rannsóknum. Varan er fyrir: Ofnæmishúð, húð sem er viðkvæm fyrir utanaðkomandi áreiti (frosti, vindi, hita, sólargeislum) eða húð sem þolir illa snyrtivörur.

Tengdar vörur