Pharmaceris A, Opti-Sensilium augnkrem vinnur gegn öldrun húðarinnar 15 ml.

Augnkremið hefur tvöfalda virkni, það sléttir úr fínum línum og endurnærir húðina í kringum augun. Öflug blanda af peptíðum og E vítamíni örvar efnaskipti kollogens og elastíns sem styrkir húðina og gerir það að verkum að hún verður stinn á ný.

Vörunúmer: 10134414
+
2.595 kr
Vörulýsing

A vörulínan frá Pharmaceris er sérstaklega ætluð þeim sem eru með viðkvæma húð og fyrir þá sem fá ofnæmi. Þessi vörulína inniheldur virk innihaldsefni sem hjálpa til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar. Hún hjálpar til við að róa og sefa viðkvæma húð um leið og hún styrkir verndandi yfirborð húðþekjunnar. Þannig kemur hún í veg fyrir ofurviðkvæmni húðarinnar og dregur úr exemi, ertingu, roða, kláða og brunatilfinningu. Húðin verður heilbrigðari, mýkri og frískari. Án ilmefna og aukaefna sem geta ert húðina. Þessi Pharmaceris lína inniheldur einstök einkaleyfisvarin innihaldsefni Immuno-Prebiotic og Leukine-Barrier.

Eins og aðrar vörur Pharmaceris hafa allar vörurnar í þessari línu verið ofnæmisprófaðar af húðlæknum og klínískt prófaðar. Öryggi og árangur varanna fyrir viðkvæma húð og ofnæmishúð hefur verið staðfestur með rannsóknum. Varan er fyrir: Ofnæmishúð, húð sem er viðkvæm fyrir utanaðkomandi áreiti (frosti, vindi, hita, sólargeislum) eða húð sem þolir illa snyrtivörur.

Augnkrem til daglegrar notkunar fyrir viðkvæma húð sem á til að fá ofnæmi. Vinnur gegn öldrun á viðkvæmu húðinni í kringum augun. Árangur og virkni vörunnar fyrir viðkvæma húð og ofnæmi hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum. 

  • 89% fannst góð rakagjöf
  • 82% fannst kremið mýkja húðina

Hæfilegt magn af dýrmætum olíum veita húðinni góða næringu og raka um leið og þær mynda vörn gegn þurrki og rakatapi. Innihaldsefnin styrkja ónæmiskerfi húðarinnar og losa hana við ertingu. Þessi einstöku innihaldsefni örva verndandi flóru húðarinnar og verja hana þannig gegn ofurviðkvæmni. Minnkar roða, þurrk og kláða þannig að húðin verður heilbrigðari. 

Virkni og öryggi vörunnar hefur verið sannreynt og prófað af húðlæknum. 

  • Ofnæmisprófað
  • Klínískt prófað
  • Án parabena
  • Án rotvarnarefna
  • Án ilmefna
Notkun

Berið kremið á hreina húð í kringum augun. Passið að bera ekki kremið inn í augun. Notið bæði kvölds og morgna. Hentar vel undir farða.

 

Innihald
  • IMMUNO-PREBIOTIC FORMULA – Sefar húðina og minnkar ertingu í henni. Hjálpar til við að minnka viðkvæmni húðarinnar.
  • Leukine-Barrier formula – Hjálpar til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar og sefar hana.
  • Peptide – Örvar efnaskipti peptíða til þess að gera hrukkur og línur minna sjáanlegar. Vinnur gegn öldrun. Örvar nýmyndun húðarinnar og gerir húðina stinnari.  
  • Passion flower oil – Sefar og losar húðina við pirring. Vinnur gegn skaðlegum umhverfisáhrifum eins og mengun, streitu og þreytu.
  • Babassu oil – Olía sem unnin er úr fræjum babassu pálmans. Hún hefur einstaka rakagefandi og mýkjandi eiginleika.
  • Rice oil – Verndar húðina og hjálpar til þess að halda henni í jafnvægi. Góður rakagjafi.

Tengdar vörur