Við niðurgang, uppköst eða mikla svitauppgufun tapar líkaminn vökva og mikilvægum söltum. Resorb er vökvauppbót sem fæst án lyfseðils og kemur jafnvægi á vökva- og saltbirgðir líkamans og flýtir þannig fyrir bata.
Líkaminn fær vökva og sölt úr Resorb freyðitöflum. Vökvauppbótin bætir vatnsupptöku líkamans og vinnur gegn vökvatapi. Resorb fæst með appelsínu- eða hindberjabragði. Mælt er með Resorb fyrir fullorðna og börn eldri en þriggja ára. Fæðubótarefni; inniheldur sykur og sætuefni.
Ábyrgðaraðili: Fastus