Elegant Touch gervineglur Salon Extensions Short Stiletto

Elegant Touch er stærsta gervinagla vörumerki Bretlands og gervineglurnar eru í hæsta gæðaflokki. Neglurnar eru þunnar svo þær virka ekki gervilegar og laga sig að náttúrulegu nöglinni. 

Vörunúmer: 10170286
+
1.369 kr
Vörulýsing

Neglurnar koma í mismunandi lagi og litum svo hver og einn ætti að geta fundið sínar fullkomnu neglur. Salon Extensions neglurnar koma í miðlungslengd í short stiletto lagi með glansandi áferð. Neglurnar eru glærar að lit og henta fullkomlega til að naglalakka eða skreyta að eigin vild.

Notkun

1 - Hreinsið þína nögl, fjarlægið naglalakk ef það á við. Gott er að pússa létt yfir þína nögl og snyrta naglabönd. Einnig er gott að strjúka yfir þína nögl með naglalakkhreinsi, til að koma í veg fyrir raka og fjarlægja náttúrulega olíu naglarinnar.

2 - Finnið rétta stærð með að máta gervinöglina á þína nögl, án þess að setja lím.

3 – Berið þunnt lag af lími á þína nögl og passið að límið fari ekki á húðina eða í naglaböndin.

4 – Leggið gervinöglina upp að naglaböndunum, passið að líma ekki á naglaböndin. Leggið gervinöglina niður á þína nögl, frá naglaböndum og niður.

5 – Þrýstið gervinöglinni rólega niður og haldið létt við í um 15 sek, eða þar til að límið hefur fest sig.

Innihald

24 x false nails & Nail Glue. Nail Glue Ingredients: Ethyl Cyanoacrylate, Polymethyl Methacrylate, BHT, BHA.

 

Tengdar vörur