Elegant Touch gervineglur Sheer Tint Ballerina Pink (Squoval)

Elegant Touch er stærsta gervinagla vörumerki Bretlands og gervineglurnar eru í hæsta gæðaflokki. Neglurnar eru þunnar svo þær virka ekki gervilegar og laga sig að náttúrulegu nöglinni. Neglurnar koma í mismunandi lagi og litum svo hver og einn ætti að geta fundið sínar fullkomnu neglur. Sheer Tint Ballerina Pink neglurnar koma í ljósbleikum lit með ombre effect. Neglurnar eru stuttar á lengd í squoval lagi með glansandi gel áferð.

Vörunúmer: 10170287
+
1.489 kr
Notkun

1- Hreinsið þína nögl, fjarlægið naglalakk ef það á við. Gott er að pússa létt yfir þína nögl og snyrta naglabönd. Einnig er gott að strjúka yfir þína nögl með naglalakkhreinsi, til að koma í veg fyrir raka og fjarlægja náttúrulega olíu naglarinnar.

2 - Finnið rétta stærð með að máta gervinöglina á þína nögl, án þess að setja lím.

3 – Berið þunnt lag af lími á þína nögl og passið að límið fari ekki á húðina eða í naglaböndin.

4 – Leggið gervinöglina upp að naglaböndunum, passið að líma ekki á naglaböndin. Leggið gervinöglina niður á þína nögl, frá naglaböndum og niður.

5 – Þrýstið gervinöglinni rólega niður og haldið létt við í um 15 sek, eða þar til að límið hefur fest sig.

Innihald

24 x false nails & Nail Glue. Nail Glue Ingredients: Ethyl Cyanoacrylate, Polymethyl Methacrylate, BHT, BHA.

Tengdar vörur