Solaray C-1000 með Rose Hips 100 hylki

C vítamín í hylkjum með Rosehips til að auka virknina enn frekar. Nauðsynlegt fyrir sterkt ónæmiskerfi, gegn flensu og kvefi og fyrir unglega og fallega húð. 

Vörunúmer: 10095648
+
3.529 kr
Vörulýsing

Hlutverk C-vítamíns til viðhalds heilbrigði líkamans er margþætt. Það hefur mikilvægu hlutverki að gegna við myndun bandvefs, er stór þáttur í vexti og heilbrigði æða, beina, góms og tanna ásamt því að auka frásog járns. C-vítamín hjálpar sárum að gróa og eykur viðnám líkamans gegn sýkingum. Líkaminn þarfnast aukins C-vítamíns þegar hann er undir andlegu eða líkamlegu álagi. C-vítamín er sindurvari (andoxunarefni) þ. e. ver frumur líkamans gegn skaðlegum áhrifum stakeinda, en það eru úrfellingarefni sem verða til við efnaskipti í líkamanum. Þekktasta skortseinkenni C-vítamíns er skyrbjúgur. Önnur einkenni eru minnkuð móstaða gegn smiti, þreyta, mæði, meltingartruflanir, sárir og bólgnir liðir, hægfara bati á sárum, vöðvaslen, blóðnasir, tannlos, tannskemmdir, bólginn og aumur gómur, blóðleysi, stökkar háræðar og ótímabær öldrunareinkenni svo eitthvað sé nefnt.

  • C-vítamín er andoxunarefni sem heldur sindurefnum í skefjum og styrkir þar af leiðandi ónæmiskerfið sem getur dregið úr eyrnabólgu. 
  • Rannsóknir hafa sýnt að C-vítamín getur hjálpað til við heyrnarskerðingu sem tengist hávaða. Einnig getur það hjálpað til við eyrnarsuð (tinnitus).


Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.


Notkun

Eitt hylki á dag með mat eða vatnsglasi.

Innihald

Vitamin C, Bioflavonoid Concentrate

Tengdar vörur