Calcium Citrate með D vítamíni frá Solaray er auðupptakanlegt og nýtist líkamanum vel. D vítamínið eykur nýtingu kalksins enn frekar. Bætiefnið er í hylki þannig að það leysist hratt upp. Kalk, öðru nafni kalsíum er það steinefni sem mest er af í líkamanum. Það er um 1,5 til 2% af líkamsþyngd, þar af 99% í beinum. Kalk er nauðsynlegt fyrir vöxt og viðhald beina og tanna. Það er mikilvægt fyrir myndun ensíma í líkamanum. Samdráttur vöðva, sending rafboða, stjórnun hjartsláttar og storknun blóðs þarfnast kalks. Rannsóknir benda til að kalk lækki blóðþrýsting, minnki blóðfitu og dragi úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum. Kalk eykur gæði svefns ef það er tekið að kvöldi og er einnig gott við tíðaspennu.
Ábyrgðaraðili: Heilsa ehf.