Organicup tíðabikar #stærð A
OrganiCup tíðabikarinn er gerður úr mjúku silíkoni sem einnig er notað í lækningatæki. Bikarinn viðheldur náttúrulegri flóru líkamans vegna þess að hann tekur einungis við vökva en drekkur hann ekki í sig. Þetta kemur í veg fyrir ertingu og þurrk og tryggir náttúrulegt PH jafnvægi. OrganiCup er einfaldur í notkun og tekur við sama magni og þrír tíðatappar. Hann veitir fullkomið hreinlæti og frelsistilfinningu við íþróttaiðkun og jafnvel sund. Stærð A er fyrir konur sem eru yngri en 30 ára og hafa ekki fætt barn gegnum fæðingarveg. • Hvað er hrein vara? Nánar hér
• Endist í allt að 10 ár
• Getur tekið við miklum vökva
• Fullkomið hreinlæti
• Engin óþægindi
• Umhverfisvænna
• Getur haldið í allt að 12 klst
• Engin þalöt, ilmefni, lím eða klór
• Gerður úr silíkoni sem er ætlað í lækningatæki
Vörunúmer: 10138083
Vörulýsing
Innihald
100% medical-grade silicone, produced in Germany. Organic cotton bag included.