Serum í sérflokki sem inniheldur þrenns konar virk og áhrifarík prótín. Þessi meðferð er virkasta og áhrifaríkasta vara BIOEFFECT. 30 Day Treatment er jafnframt fyrsta húðvaran sem inniheldur þrjár ólíkar tegundir prótína sem unnin eru úr byggi:
- EGF: Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
- IL-1a: Boðskiptaprótín sem styrkir húðina og viðheldur þéttleika hennar.
- KGF: Boðskiptaprótín sem styður við náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar, styrkir varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd.
Með hækkandi aldri dvínar magn náttúrulegra vaxtaþátta í húðinni. Þessi prótín, sem við vinnum úr byggi, vinna í sameiningu gegn sjáanlegum öldrunaráhrifum: hrukkum, svitaholum, þurrki, slappleika og litabreytingum.
Bættu húðumhirðuna og upplifðu meiri árangur en nokkru sinni fyrr með 30 Day Treatment. 30 Day Treatment er algjör bylting fyrir þá sem vilja skjótan og sýnilegan árangur gegn sjáanlegum öldrunarmerkjum. Meðferðin inniheldur þrjár flöskur og hver flaska inniheldur 10 daga skammt. Varan er einföld í meðhöndlun og notkun. Notið kvölds og morgna til að tryggja hámarksárangur.
- Dregur sjáanlega úr ásýnd fínna lína
- Eykur þéttleika húðar
- Eykur og viðheldur rakastigi húðarinnar
- Húðin verður sléttari og þéttari
- Jafnar húðlit
- Minnkar ásýnd svitahola
- Hentar öllum húðgerðum
- Aðeins 9 hrein og náttúruleg innihaldsefni
- Aðeins er þörf á 3-4 dropum í hvert skipti
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Án rotvarnarefna
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 15ml (3 x 5ml)