Augnserum sem eykur þéttleika og inniheldur aukið magn BIOEFFECT EGF vaxtarþátts.
Létt og endurnærandi augnserum sem inniheldur aukið magn BIOEFFECT EGF — endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur sem vinnur gegn sjáanlegum öldrunarmerkjum. BIOEFFECT EGF, hýalúronsýra og hreint, íslenskt vatn draga úr ásýnd fínna lína á augnsvæðinu og skilja við húðina vel nærða, þétta og slétta. Á flöskunni er kælandi stálkúla sem tryggir jafna dreifingu og hefur einstök áhrif á þrota og þreytumerki. Náðu hámarksárangri með virkri húðvöru sem inniheldur aðeins 11 hrein og náttúruleg efni.
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Dregur úr þrota og þreytumerkjum og vinnur gegn slappri húð
- Nærandi
- Þéttir og sléttir húðina
- Eykur ljóma
- Kælandi stálkúla sem vinnur gegn þrota
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af augnlæknum
- Prófað af húðlæknum