BIOEFFECT Micellar Cleansing Water 200 ml.

Milt en áhrifaríkt hreinsivatn sem inniheldur íslenskt vatn og nærandi rakagjafa úr plönturíkinu. Hreinsar farða og óhreinindi á skjótan og árangursríkan hátt án þess að erta eða þurrka húðina.

Vörunúmer: 10149316
+
6.990 kr
Vörulýsing

Micellar Cleansing Water hentar vel fyrir daglega húðumhirðu vegna þess hve hreint og milt það er en hentar jafnframt afar vel við þau tilefni þar sem erfitt er að þrífa húðina, til dæmis á ferðalagi eða í útilegum.

Hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna.

Notkun

Vætið bómullarskífu vel með BIOEFFECT Micellar Cleansing Water. Strjúkið mjúklega yfir andlit, augnsvæði og háls. Endurtakið þar til öll óhreinindi virðast fjarlægð af húðinni.

Innihald
  • Mildar mísellur — Blanda af svokölluðum yfirborðsvirkum efnum (e. surfuctant-active agents). Efnin virka eins og segull á olíur og áhreinindi, án þess að fjarlægja náttúrulegar olíur af yfirborði húðarinnar.
  • Rakagjafar úr plönturíkinu — Endurnærandi efni sem draga til sín raka úr umhverfinu og halda húðinni vel nærðri.
  • Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.


Innihaldsefnalisti
WATER (AQUA), ISOPENTYLDIOL (HYDRATING AGENT), GLYCEROL, PEG-7 GLYCERYL COCOATE, PROPYLENE GLYCOL, SORBITOL, COCAMIDOPROPYL BETAINE, POLYSORBATE 20, PHENOXYETHANOL, CITRIC ACID, TETRASODIUM EDTA

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Tengdar vörur