Pharmaceris R, Lipo-Rosalgin dagkrem gegn rósroða SPF30 30 ml.

Sefandi dagkrem fyrir venjulega og þurra húð með rósroða. Hjálpar til við að draga úr roða og bólumyndun. Árangur og virkni vörunnar fyrir viðkvæma húð með rósroða hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.

Vörunúmer: 10134419
+
2.788 kr
Vörulýsing

Þessi lína hjálpar til við að meðhöndla rósroða (rosacea). Kremin innihalda engin ilmefni eða önnur efni sem erta húðina. Þau sefa og veita raka þannig að húðin verður minna rauð. Kremin hjálpa einnig til við að koma í veg fyrir sýkingar í húðinni. Rósroði veldur því að húðin verður mislit og rauð, fljótandi farðinn hentar konum með rósroða einkar vel þar sem hann er mildur og hylur vel. Hreinsilínan í A línunni hentar vel fyrir húð með rósroða þar sem hún inniheldur hvorki ilmefni né paraben.  

  • 84% segja kremið gefa góðan raka
  • 70% segja kremið draga úr roða

Hárnákvæm samsetning innihaldsefna hjálpar húðinni að verjast sýkingum sem eru oft fylgifiskur rósroða. Þannig verður húðin heilbrigðari og áferðarfallegri. Kremið styrkir háræðarnar og dregur úr roða. Innihaldsefnið „Piroctone olamine“ hefur góða bakteríudrepandi eiginleika og dregur þannig úr bólumyndun. Það hjálpar einnig til við að koma jafnvægi á verndandi yfirborð húðarinnar og heldur þannig einkennum af völdum rósroða niðri. Önnur innihaldsefni á borð við „D-panthenol“ og „allantoin“ sefa ertingu í húðinni, draga úr roða og styrkja ónæmiskerfi húðarinnar. Að lokum styrkir ólívu vax varnarlag húðarinnar ásamt því að veita góðan raka og næringu. Með reglulegri notkun verður húðin síður rauð.

Virkni og öryggi vörunnar hefur verið prófað og sannreynt af húðlæknum

  • Án parabena
  • Án ofnæmisvaka
  • Án litarefna
  • Án ilmefna
Notkun

Hreinsið húðina áður en kremið er borið á. Notið kremið daglega. 

Innihald
  • Piroctone olamine – Hefur bakteríudrepandi eiginleika. Hjálpar til við að koma jafnvægi á verndandi yfirborð húðarinnar og koma í veg fyrir flögnun og bólumyndun.
  • Golden algae extract – Kemur í veg fyrir þurrk, styrkir ysta lag húðarinnar og veitir raka. Örvar eðlilegt nýmyndunarferli húðarinanr.
  • D-panthenol – Sefar húðina og gerir það að verkum að hún verður minna viðkvæm.
  • Olive wax – Hefur nærandi eiginleika og veitir raka.
  • Allantoin – Sefar húðina og stuðlar að eðlilegri endurnýjun yfirhúðarinnar.