Pharmaceris N Capinon K1% Reducing capillary gegn roða 30 ml.

Þetta krem er til daglegra nota fyrir viðkvæma húð. Það er sérstaklega hannað fyrir húð með roða, útvíkkaðar háræðar eða háræðaslit. Kremið hentar þeim sem verða stundum rauðir í andliti af mismunandi ástæðu sem dæmi vegna hita, kulda, sterkra tilfinninga og neyslu áfengis eða krydds í mat.

Vörunúmer: 10134404
+
4.013 kr
Vörulýsing

Kremið hentar einnig þeim sem hafa farið í aðgerðir á húðinni. Það styrkir háræðanetið, dregur úr hörundsroða (erythema) og húðin verður fljótari að jafna sig eftir aðgerð. 

Virkni og árangur vörunnar hefur verið sannreyndur og prófaður af húðlæknum.

  • 96% finnst kremið losa húðina við pirring
  • 96% finnst kremið veita vellíðan
  • 84% finnst kremið minnka roða
  • 80% finnst viðvarandi roði minnka

Kremið inniheldur K vítamín sem sefar og dregur úr roða í húðinni. Útvíkkaðar háræðar verða minna sjáanlegar á yfirborði húðarinnar. Kremið dregur úr roða vegna utanaðkomandi áreitis. K vítimín hjálpar húðinni að verjast háræðasliti. Kremið hentar til þess að undirbúa húðina fyrir aðgerðir og gerir það að verkum að hún verður fljótari að jafna sig og ekki eins rauð. Kremið sefar og mýkir um leið og það kemur í veg fyrir hörundsroða (erythema). 

  • Ofnæmisprófað
  • Klínískt prófað
  • Án efna sem vitað er að geta valdið ofnæmi (allergen free)
  • Án parabena
  • Án rotvarnarefna
  • Án litarefna

N línan hjálpar til við að styrkja háræðanet húðarinnar og vernda hana gegn háræðasliti. Veðurfarið á Íslandi er oft erfitt fyrir húðina. Það getur valdið háræðasliti þegar húðin verður í sífellu fyrir veðrabreytingum. Háræðaslit veldur því að húðin verður rauð og veðurbarin. Þessi húðlína minnkar roða í húðinni og verndar hana gegn áreiti. Varan inniheldur einstök vítamín sem gera húðina bjartari, auka teygjanleika hennar og jafnar húðlit.

Notkun

Berið kremið í þunnu lagi á húðina þar sem hún er rauð (einungis á þau svæði sem hún er heil).

Innihald

– K Vitamin – Hjálpar húðinni að verjast og vinna gegn háræðasliti.