Pharmaceris A, Vita- Sensilium rakagefandi dagkrem með SPF20 50 ml.

Dagkrem til daglegra nota fyrir viðkvæma eða ofnæmishúð. Ætlað fyrir þá sem eru með þurra húð og vantar raka. Kremið veitir raka sem helst vel í húðinni. Það mýkir húðina og bætir teygjanleika hennar. Einstök rakagefandi og nærandi innihaldsefni styrkja ysta lag húðarinnar sem verndar hana gegn rakatapi.

Vörunúmer: 10134411
+
2.699 kr
Vörulýsing

A vörulínan frá Pharmaceris er sérstaklega ætluð þeim sem eru með viðkvæma húð og fyrir þá sem fá ofnæmi. Þessi vörulína inniheldur virk innihaldsefni sem hjálpa til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar. Hún hjálpar til við að róa og sefa viðkvæma húð um leið og hún styrkir verndandi yfirborð húðþekjunnar. Þannig kemur hún í veg fyrir ofurviðkvæmni húðarinnar og dregur úr exemi, ertingu, roða, kláða og brunatilfinningu. Húðin verður heilbrigðari, mýkri og frískari. Án ilmefna og aukaefna sem geta ert húðina. Þessi Pharmaceris lína inniheldur einstök einkaleyfisvarin innihaldsefni Immuno-Prebiotic og Leukine-Barrier.

Eins og aðrar vörur Pharmaceris hafa allar vörurnar í þessari línu verið ofnæmisprófaðar af húðlæknum og klínískt prófaðar. Öryggi og árangur varanna fyrir viðkvæma húð og ofnæmishúð hefur verið staðfestur með rannsóknum. Varan er fyrir: Ofnæmishúð, húð sem er viðkvæm fyrir utanaðkomandi áreiti (frosti, vindi, hita, sólargeislum) eða húð sem þolir illa snyrtivörur.

Árangur og virkni vörunnar fyrir viðkvæma húð og ofnæmi hefur verið sannreyndur með klínískum prófunum.

  • 92% fannst kremið sefa húðina og minnka þurrk*
  • 92% fannst húðin endurnærð af raka*

Kremið verndar húðina gegn skaðlegum umhverfisáhrifum og UV vörn ver hana gegn ótímabærri öldrun. Innihaldsefnin hjálpa til við að koma jafnvægi á ónæmiskerfi húðarinnar og sefa hana. Kremið örvar náttúrulega verndandi flóru húðarinnar þannig að hún verður ekki eins viðkvæm. Minnkar roða, þurrk og kláða þannig að húðin verður heilbrigðari. 

Virkni og öryggi vörunnar hefur verið sannreynt og prófað af húðlæknum.

  • Ofnæmisprófað
  • Klínískt prófað
  • Án Parabena
  • Án ilmefna

Notkun

Hreinsið húðina með Pharmaceris hreinsi og berið síðan kremið á í hæfilegu magni. Kremið er létt, fer fljótt og vel ofan í húðina og hentar vel sem farðaundirlag. Kremið stíflar ekki húðina.

Innihald
  • IMMUNO-PREBIOTIC FORMULA – Sefar húðina og minnkar ertingu. Hjálpar til við að minnka viðkvæmni húðarinnar.
  • Cogon grass – Stuðlar að því að rakinn haldist í húðinni.
  • Green algae – Hjálpar húðinni að draga í sig nauðsynleg næringarefni. Veitir raka, mýkir húðina og kemur í veg fyrir grófa húð.
  • Olive wax – Mildur næringar- og rakagjafi.
  • Glucam® – Bindur raka í húðinni og gerir það að verkum að hann helst lengi í húðþekjunni. Það hjálpar húðinni að endurheimta teygjanleika og styrk þannig að hún verður mýkri og sléttari.

Tengdar vörur