Lúsmý fælur
Lúsmý hefur náð fótfestu á Íslandi síðustu árin. Lúsmý eru agnarsmáar mýflugur, almennt 1-3 mm, afar fíngerðar og illa sýnilegar nema helst þegar þær safnast margar saman á húð spendýra til að taka þeim blóð. Á það ekki síst við um ljósa og hárlitla húð manna. Fluguna getur því verið erfitt að greina með berum augum. Lúsmý heldur sig þar sem er skjól og skuggi og leggst einkum á fólk í svefni og verður fólk því oft ekki vart við bitin fyrr en kláði og bólga koma fram. Líkamshlutar sem standa berir út undan sængum, svo sem andlit og herðar, handleggir og fótleggir gefa flugunum sóknarfæri. Fljótlega eftir bit koma fram bólur og útbrot með tilheyrandi óbærilegum kláða sem staðið getur yfir í allnokkra daga.