EGF Serum er vísindalega þróað serum sem fyrirbyggir og vinnur á sýnilegum öldrunarmerkjum húðar. Inniheldur okkar einstaka BIOEFFECT EGF, endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur sem gegnir mikilvægu hlutverki við að efla rakabindingu, auka þéttleika og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd. Klínískar innanhússrannsóknir hafa sýnt að EGF Serum eykur raka, dregur úr ásýnd hrukka og fínna lína og þéttir húðina. Upplifðu hámarksárangur með hreinni húðvöru sem inniheldur aðeins 7 náttúrulega virk efni.
EGF Eye Serum EGF Eye Serum hefur öflug áhrif á ásýnd húðarinnar umhverfis augun enda er það sérstaklega þróað til að vinna á fínum línum, broshrukkum, hrukkum og slappleika. Augnserumið er blandað með BIOEFFECT EGF, hýalúronsýru og hreinu, íslensku vatni til að þétta, slétta og næra húðina á augnsvæðinu. Á flöskunni er kælandi stálkúla sem er notuð til að dreifa úr formúlunni og hefur á sama tíma einstök áhrif á þrota, þreytumerki og dökka bauga.
Imprinting Eye Mask er nærandi augnmaski fyrir viðkvæmu húðina umhverfis augun. Hýalúronsýra og glýserín veita húðinni mikinn og djúpvirkan raka auk þess að draga úr þrota. Gelkennd áferðin hefur bæði kælandi og róandi áhrif. Augnmaskinn er sérstaklega þróaður til að hámarka virkni BIOEFFECT seruma.
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Ofnæmisprófað
EGF Serum
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur og viðheldur raka í húðinni
- Þéttir og sléttir húðina
- Aðeins 7 hrein innihaldsefni
- Stærð: 15ml / 0.5 fl. oz.
EGF Eye Serum
- Dregur úr ásýnd fínna lína umhverfis augun
- Dregur úr þrota og þreytumerkjum
- Vinnur gegn slappri húð, þéttir og sléttir
- Aukið magn EGF prótína úr byggi fyrir öflugri áhrif
- Stærð: 6ml / 0.2 fl. oz.
Imprinting Eye Mask
- Nærir og þéttir húðina umhverfis augun
- Hámarkar virkni EGF
- Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur
- Kælandi og róandi gelmaski
- Stærð: 3.6g / 0.12 oz