Bioeffect EGF Power Eye Cream 15 ml.

EGF Power Eye Cream er sérstaklega þróað til að minnka ásýnd fínna lína og hrukka, bauga, þrota og þurrks á augnsvæðinu. Þetta kraftmikla augnkrem byggir að hluta til á formúlu og velgengni BIOEFFECT Power-vörulínunnar. EGF Power Eye Cream er öflug blanda sex virkra innihaldsefna og er sérstaklega þróuð fyrir þroskaða húð og til að veita sýnilegan árangur.

 

Vörunúmer: 10170463
+
15.490 kr
Vörulýsing

Eiginleikar og áhrif
Öflug blanda 6 virkra innihaldsefna sem veita sýnilegan árangur.

EGF Power Eye Cream vinnur á fínum línum og hrukkum og veitir djúpan og langvarandi raka sem þéttir og sléttir augnsvæðið. Þetta kraftmikla augnkrem er þróað til að vinna á augnsvæðinu vegna andoxunarvirkninnar og hefur auk þess sefandi áhrif. Þessi háþróaða formúla inniheldur BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor) og auk þess má nefna koffín, bakúsíól, seramíð, bygg ekstrakt (barley seed extract) og níasínamíð. Saman skila innihaldsefnin sýnilegum árangri þar sem augnsvæðið verður þéttara og vel nært.

EGF Power Eye Cream byggir á velgengni hinna margverðlaunuðu BIOEFFECT Power-vara, EGF Power Cream og EGF Power Serum, og er því um að ræða framsækna viðbót við Power-vörulínuna. BIOEFFECT Power-vörulínan er sérstaklega þróuð fyrir þroskaða og þurra húð og fyrir þau sem vilja öflugri og áhrifaríkari vörur.

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur þéttleika og húðin virðist stinnari
  • Dregur úr baugum, þrota, þreytumerkjum og slappleika
  • Jafnar húðlit og dregur úr litamisfellum
  • Eykur rakabindingu
  • Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri eða þroskaðri húð
  • Án ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikon-efna og glútens
  • Prófað af húð- og augnlæknum

Klínískar rannsóknir, sem framkvæmdar voru af vísindateymi BIOEFFECT, leiddu í ljós að hið nýja EGF Power Eye Cream dregur sýnilega úr ásýnd fínna lína og hrukka auk þess sem það hjálpar til við að auka rakastig húðarinnar, bæta þéttleika og teygjanleika. Þannig verður húðin þéttari, sléttari og þrýstnari með reglulegri notkun þess.


Klínísk rannsókn á 50 þátttakendum með notkun Derm Lab og VISIA Skin Analysis System. Þátttakendur notuðu BIOEFFECT EGF Power Eye Cream tvisvar á dag í þrjá mánuði.

  • Allt að 64% minnkun á ásýnd fínna lína og hrukka
  • Allt að 130% aukning á raka húðar
  • Allt að 165% aukning á þéttleika húðar
  • Allt að 79% aukning á þykkt húðar
  • Allt að 91% aukning á teygjanleika húðar
Innihald
  • BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor) - hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur og þéttir og sléttir húðina. EGF er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur.
  • Koffín - Dregur úr þrota og baugum á meðan það bætir smáæðablóðrásina og nærir augnsvæðið. Býr yfir andoxunarvirkni sem hjálpar til við að vernda húðina fyrir UV-geislum og skemmdum.
  • Bakúsíól - Náttúrulegt innihaldsefni sem býr yfir sambærilegri virkni og retínól. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka og jafnar húðlit og áferð án þess að erta húðina.
  • Níasínamíð - Einnig þekkt sem B3-vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.
  • Seramíð - Eykur raka í húðinni svo hún verður þéttari ásýndar. Seramíð hjálpar til við að lágmarka þrota og að baugar myndist með því að endurheimta raka og þéttleika augnsvæðisins.
  • Bygg ekstrakt (Barley seed extract) - Öflugt innihaldsefni ríkt af peptíðum og andoxunarefnum. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka.
     

Innihaldsefnalisti
WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CETYL ALCOHOL, GLYCERIN, SORBITOL, CAFFEINE, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, GLYCERYL STEARATE SE, PROPYLENE GLYCOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, NIACINAMIDE, SQUALANE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, BAKUCHIOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL POWDER, SCLEROTIUM GUM, CITRUS AURANTIFOLIA (LIME) PEEL POWDER, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, XANTHAN GUM, CERAMIDE NG, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Tengdar vörur